Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fundaði í gær í utanríkisráðuneytinu með bandarísku öldungadeildarþingmönnunum Lisu Murkowski frá Alaska og Catherine Cortez Masto frá Nevada, en þær voru hluti þingmannahóps átta kvenna úr öldungadeildinni, sem hélt til norðurslóða í síðustu viku til þess að kynna sér aðstæður.
Hópurinn ferðaðist til Kanada, Grænlands, Svalbarða og síðan til Íslands, en vélarbilun leiddi til þess að þær Murkowski og Cortez Masto héldu tvær á undan kollegum sínum til Íslands til að funda með Þorgerði Katrínu. Ræddu þær m.a. öryggis- og varnarmál á norðurslóðum, málefni Úkraínu, tvíhliða samskipti ríkjanna og ýmis tækifæri í viðskiptum þeirra.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
Innskráning
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.