Ræða Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta Íslands, frá því í gær er nú aðgengileg á streymisveitunni Spotify.
Ólafur flutti um hálftíma ræðu á stofnfundi hreyfingarinnar „Áfram Ísland“ sem haldinn var í Sjálfstæðissalnum við Austurvöll síðdegis í gær. Hreyfingin leggst gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Ásamt Ólafi fluttu þau Björn Zoëga læknir og Lára Herborg Ólafsdóttir lögmaður ræður, en Halldór Benjamín Þorbergsson hagfræðingur stýrði fundinum.
Á fundinn mættu um átta hundruð manns og fylltist salurinn fljótt. Því þurfti að vísa um tvö hundruð í sali nærliggjandi húsa þar sem fylgst var með ræðuhöldunum á skjáum.
Fjallaði um sögu Íslands og framtíð
Í ræðunni fjallaði Ólafur um bæði sögu Íslands og framtíð. Hann talaði um að honum væri ekki sama um árangurinn af þeim hundrað árum sem það tók að færa Íslandi fullgildan rétt í samfélagi þjóðanna.
„Nú er búið að taka U-beygju og reynt að sannfæra okkur um það að okkur sé best borgið með því að afhenda erlendum, framandi aðilum stóran hluta af okkar löggjafarvaldi, framkvæmdarvaldi og dómsvaldi. Að þeir úti í Brussel séu betur færir um að stjórna framtíð Íslands heldur en við,“ sagði Ólafur meðal annars.