Ráðherra bandaríska hersins, Dan Driscoll, hefur beðist lausnar úr embætti. Hvíta húsið hefur staðfest að Driscoll hafi sagt af sér embætti.
Anna Kelly, aðstoðarfjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins, var spurð út í ástæður uppsagnarinnar af fjölmiðlafólki en gaf ekkert upp um þær. Kelly sagði að Driscoll hefði sinnt vel áherslumálum forsetans í varnarmálum. Hann hefði sýnt framúrskarandi leiðtogahæfni í hernaðaraðgerðum Bandaríkjahers og meðal annars komið að samningaviðræðum milli Rússlands og Úkraínu.
Ef uppsögn Driscoll verður samþykkt þá bætist hann í hóp háttsettra herforingja sem hafa farið úr embætti í stjórn Donalds Trumps Bandaríkjaforseta.
The Wall Street Journal greindi fyrst frá uppsögn Driscolls. Fjölmiðillinn segir ástæðuna ágreining Hegseth og Driscoll um það hvernig stýra eigi hernum og Driscoll er sagður ósáttur við uppsagnir Hegseth á fjölda háttsettra hershöfðingja undanfarið.
Driscoll er fyrrum hermaður og náinn vinur JD Vance, varaforseta Bandaríkjanna, en þeir voru bekkjarbræður í laganámi í Yale-háskóla.
CNN hefur greint frá því að Hegseth hafi litið á góð tengsl Driscoll við Hvíta húsið sem leið til að fara fram hjá honum og það hafi skapað vantraust hjá Hegseth gagnvart Driscoll.
Hegseth rak starfsmannastjóra bandaríska hersins, herforingjann Randy George, í apríl og hefur ekki enn tilnefnt eftirmann hans.