Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík, RIFF, leggur sérstaka áherslu á Portúgal í ár og verður hin portúgalska Maria de Madeiros, sem hefur meðal annars leikið í Henry & June (1990), Pulp Fiction (1994) og Chicken With Plums (2011), meðal heiðursgesta.
Í tilefni af komu hennar býður RIFF, í samstarfi við Hamborgarabúllu Tómasar, upp á einstaka stemningssýningu á meistaraverkinu Pulp Fiction eftir Quentin Tarantino þann 2. október í Háskólabíó. Maria verður viðstödd sýninguna og mun taka þátt í samtali við áhorfendur að henni lokinni.
Til að fullkomna Pulp Fiction-upplifunina býður Hamborgarabúlla Tómasar gestum upp á hamborgaraveislu í hléi. Við miðakaup velja gestir einn af þremur borgurum í anda myndarinnar: Royale With Cheese, Big Kahuna Burger og The Durward Kirby Burger. Með borgaranum fylgir svo hinn nafntogaði „5 dollara mjólkurhristingur“ án búrbons eða annarra aukefna.
Þess ber að geta að árið 2021 þá endurgerðu leikararnir Halldóra Geirharðsdóttir og Tómas Lemarquis borgarasenuna frægu úr Pulp Fiction fyrir RIFF en hana má sjá hér að neðan:
Takmarkað sætaframboð verður á sýninguna og áhugasamir eru hvattir til að tryggja sér miða á vef RIFF en hátíðin fer fram dagana 24. september til 4. október næstkomandi.