Rækjuskeljavinnsla er hafin á ný í verksmiðju Primex á Siglufirði. Stórbruni varð í verksmiðjunni í október í fyrra og tjónið metið á rúman einn koma þrjá milljarða króna.
Vélarnar hjá Primex voru ræstar á ný á dögunum eftir um 8 mánaða vinnslustopp.
„Það á nú eftir að taka smá tíma að keyra upp verksmiðjuna en þetta er bara mikill gleðidagur og við erum bara fegin að geta byrjað“ segir Vigfús Fannar Rúnarsson, framkvæmdastjóri Primex.
Þeir tuttugu starfsmenn sem þar vinna héldu allir vinnunni þó að vinnsla væri stopp - en geta nú loksins snúið sér aftur að sínum hefðbundnu störfum. Vinnustaðurinn er með þeim stærri á Tröllaskaga.
Hjá Primex er hráefnið kítósan unnið úr rækjuskel, til notkunar í til dæmis lækningavörur. Þau framleiða einnig snyrtivörur og lækningavörur undir merkinu ChitoCare.
Fengu þriðjung allra brunabóta á síðasta ári
Í árlegri samantekt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar er fjallað um tjón vegna eldsvoða og þar er tilgreint að heildarbætur vegna bruna séu rúmir 3 milljarðar króna. Þar af fékk Primex um þriðjung, eða 1,3 milljarða, sem Vísir greindi fyrst frá.
Vigfús segir tjónið sannarlega hafa verið mikið, en endurbygging hafa gengið vel og vonandi komist þau fljótt á fullan skrið.
„Varðandi afköst og hérna, hvað við þurfum langan tíma til að keyra upp til að ná fullum afköstum það verður bara svolítið að koma í ljós.“