Atvinnuvegaráðherra segir sorglegt að horfa upp á fólk gera íslenska fánann að tákni sundrungar og óvildar í garð tiltekinna hópa og að sporna verði við þessari þróun.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra skrifar á Facebook að íslenski fáninn hafi frá upphafi verið sameiningartákn þjóðar sem standi fremst meðal jafningja þegar komi að frelsi, jafnrétti og virðingu fyrir mannréttindum.
Tilefni skrifanna er ekki sérstaklega tekið fram í færslunni en líklega er það skemmdarverk við Grafarvogskirkju í gær þegar íslenski fáninn, eða fánalitirnir hið minnsta, voru málaðir yfir regnbogafána á tröppum kirkjunnar. Lögreglan rannsakar skemmdarverkið sem hatursglæp.
Hanna Katrín segir að þjóðin megi ekki leyfa því að gerast að íslenski fáninn verði gerður að sundrungartákni.
„Við ætlum ekki að vakna upp við þá martröð einn daginn að popúlistar og rasistar hafi náð að endurskilgreina hlutverk íslenska fánans og hvað það þýðir að flagga honum,“ skrifar Hanna Katrín.
„Íslenski fáninn er okkar allra og hinsegin fáninn er allra þeirra sem vilja leggja áherslu á að hinsegin fólk er öruggt og frjálst í samfélaginu okkar. Báðir fánarnir eru tákn samstöðu gegn sundrungu. Báðir fánarnir eiga sitt mikilvæga pláss. Látum engan segja okkur annað.“