Ástralska tónlistardrottningin Kylie Minogue fagnar stórafmæli og lætur ekkert stöðva sig. Heimsbyggðin dillaði sér í gær enda fagnaði sjálf poppprinsessan, Kylie Minogue, 58 ára afmæli sínu þann 28. maí.
Söngkonan geðþekka, sem fæddist í Melbourne í Ástralíu árið 1968, fagnaði í afmælinu, ferskari en nokkru sinni fyrr og full af krafti. Kylie hóf ferilinn sem leikkona í sápuóperunni Neighboursárið 1986 en þaðan stökk hún beint á stjörnuhimininn í tónlistarheiminum. Fyrstu smáskífur hennar, „The Loco-Motion“ og „I Should Be So Lucky“, gerðu allt vitlaust á stjörnuhraða.
Síðan þá hefur hún selt yfir 80 milljónir platna á heimsvísu. Afmælið gæti varla komið á betri tíma en nýrri heimildarmynd um stjörnuna var hleypt af stokkunum á dögunum á Netflix, þar sem farið er yfir magnaðan feril hennar og ótrúlega hæfileika til að endurnýja sig á dansgólfinu áratug eftir áratug.