Húsið var teiknað af Halldóri H. Jónssyni, byggt árið 1949 og hefur fengið gott viðhald að utan, var endursteinað og skartar koparrennum. Íbúðin er ein af þremur í húsinu, er með sérinngang, sérbílastæði á lóð og samanstendur af forstofu, alrými, eldhúsi, tveimur svefnherbergjum, baðherbergi og kjallararými.
Íbúðin er á miðhæð hússins og er gengið upp tröppur inn í flísalagt anddyri og herbergjagang. Til hægri er gengið inn í forstofuherbergi og þaðan inn í parketlagt alrými með arni, stórum frönskum gluggum og góðri lofthæð. Samliggjandi því er borðstofa og eldhús með vönduðum innréttingum og tækjum.
Frá ganginum er einnig gengið inn í rúmgott aðalsvefnherbergi með nýlegu teppi á gólfi og aukaherbergi sem er nýtt sem vinnuherbergi en getur nýst sem skrifstofa eða barnaherbergi. Baðherbergið er rúmgott, var áður baðherbergi og svefnherbergi, og var endurnýjað árið 2015. Gólfhiti er á gangi, baðherbergi og herbergjum.
Í kjallara eru skráðir aukalega 26,6 fm sem skiptast í sérþvottahús, snyrtingu, geymslur og aukaherbergi. Rýmið í kjallaranum býður upp á ýmsa möguleika. Hægt er að lesa nánar um eignina á fasteignavef Vísis og skoða myndir hér að neðan: