Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm

Akureyringur á þrítugsaldri hefur verið boðaður fyrir Héraðsdóm Norðurlands eystra þar sem lögreglustjórinn á Norðurlandi eystra krefst upptöku á rúmlega 172 þúsund krónum sem haldlagðar voru í tengslum við rannsókn máls hans.
Krafist er að Akureyringurinn sæti upptöku á 172.500 krónum, auk áfallinna vaxta og verðbóta frá haldlagningardegi. Fjármunirnir voru haldlagðir við handtöku hans 25. ágúst 2023 og við húsleit á Akureyri daginn eftir.
Akureyringurinn var í nóvember 2025 sakfelldur fyrir ýmis brot. Ákærulið vegna peningaþvættis var hins vegar vísað frá dómi og upptökukröfu vegna fjármunanna hafnað.
Frávísunin var kærð til Landsréttar sem felldi hana úr gildi og lagði fyrir héraðsdóm að taka ákæruliðinn um peningaþvætti til efnismeðferðar.
Héraðsdómur Norðurlands eystra kvað síðan upp nýjan dóm 30. mars síðastliðinn þar sem Akureyringurinn var einnig sakfelldur fyrir peningaþvætti.
Dómurinn tók þó ekki afstöðu til kröfu lögreglustjóra um upptöku fjármunanna. Sú krafa er því nú rekin í sérstöku sakamáli fyrir Héraðsdómi Norðurlands eystra.