ETS verður eitt af forgangsmálunum þegar við Íslendingar semjum um aðild að ESB. Þar eigum við samleið með t.d Spánverjum sem hafa sömu hagsmuni þegar kemur að Kanaríeyjum og fjarlægð þeirra frá meginlandi Evrópu. Það er algerlega skýrt að hægt er að semja um grundvallarhagsmuni og fá varanlegar lausnir í aðildarsamningum við ESB. Dæmin sanna það. Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar Alþingis, er gestur Ólafs Arnarsonar á hlaðvarpi Eyjunnar.
Pawel Bartoszek: Við megum nú afhenda íslenskum flugfélögum losunarheimildir án greiðslu