Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segist ánægður með að Sjálfstæðismenn vilji nú að tillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu um viðræður við Evrópusambandið verði samþykkt. Það komi fram í breytingartillögu flokksins. Jón Pétur Zimsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir um mistök í skjalavinnslu að ræða.
„Sjálfstæðisflokkurinn á þinginu er kominn í ógöngur í þessu þjóðaratkvæðagreiðslumáli. Í gær hömuðust þingmenn hans á Flokki fólksins fyrir að vilja samþykkja þjóðaratkvæði um aðild. Því það væri skref í átt að aðild! „Og er FF ekki á móti aðild?!““ segir Pawel í færslu á samfélagsmiðlum í dag. „Það er kaldhæðnislegt því Sjálfstæðisflokkurinn sjálfur (þ.e. fulltrúar hans í utanríkismálanefnd) leggur til að tillagan verði samþykkt, með örfáum breytingum.“
Breytingartillaga
Vísar hann í skjal sem Diljá Mist Einarsdóttir og Hildur Sverrisdóttir, þingkonur Sjálfstæðisflokksins, skiluðu inn til Alþingis. Í skjalinu segir að lagt sé til að tillaga um viðræður verði samþykkt með breytingartillögu.
Pawel bendir á að þessi breyting feli í sér að atkvæðagreiðslunni yrði frestað um nokkrar vikur, spurningu aðeins breytt og skerpt á samningsmarkmiðunum.
„Mistök í skjalavinnslu“
„Sjálfstæðisflokkurinn er, með eigin rökum, að samþykkja að við tökum skref í átt að aðild,“ segir Pawel. „Ég hafði bent á þetta í nokkrum andsvörum fram eftir degi. Undir miðnætti sagði Jón Pétur Ziemsen svo, eftir að hafa fengið skilaboð frá félögum sínum, að þetta væru … MISTÖK Í SKJALAVINNSLU!“
Nú í morgun sé skjalið hins vegar enn þá inni á vef Alþingis, óbreytt.
Á hlaupum
„Ég var reyndar dálítið ánægður með að Sjálfstæðismenn væru til í að leyfa kjósendum að taka ákvörðun um aðildarviðræður við ESB, með ákveðnum lagfæringum, þá er það allavega einhver grundvöllur mögulegs samtals. En mér heyrist þeir því miður á hlaupum undan því,“ segir Pawel. „Þannig að árangur gærdagsins er sem sagt að mér tókst, með of mörgum spurningum, að gera afstöðu Sjálfstæðisflokksins í málinu verri.“