„Það er engin óvissa. Það er alveg klárt mál að við ætlum að endurráða fólkið til okkar,“ segir Davíð Torfi Ólafsson, forstjóri Íslandshótela, í samtali við fréttastofu. Þetta eigi við um allt starfsfólk sem vinni á hótelunum tveimur í dag.
Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að sumir starfsmenn hafi verið uggandi eftir fund með stjórnendum í dag og óttast um atvinnuöryggi sitt eftir yfirtökuna þann 1. september. Þá kom tilkynning stjórnenda Berjaya í dag um væntanlega yfirtöku sumum starfsmönnum á óvart.
Enn ríkir óvissa um nöfn hótelanna eftir yfirtöku Íslandshótela þar sem Berjaya á vörumerkin Nordica og Natura, að sögn Davíðs. Hann telur þó líkur á því að hótelið við Suðurlandsbraut verði áfram rekið undir merkjum alþjóðlegu Hilton-keðjunnar.
Berjaya hætti við
Í fyrra var greint frá því að leigusamningur fasteignafélagsins Reita sem á húsnæðið við Berjaya væri að renna út. Íslandshótel vildu þá taka við en Berjaya gat enn nýtt sér forleigurétt.
Berjaya gaf út í maí 2025 að það ætlaði að nýta réttinn og leigja húsnæðið áfram en hætti síðar við. Þá komu Íslandshótel aftur að samningaborðinu með Reitum, að sögn Davíðs. Berjaya Hotels Iceland hf. tapaði tæplega milljarði króna árið 2025 og tapaði rúmlega 1,6 milljarði árið á undan.
„Þetta er búið að taka svolítið langan tíma, það verður að viðurkennast, en þetta hafðist,“ segir Davíð.
„Íslandshótel munu vinna með hlutaðeigandi aðilum að tryggja eins góða samfellu og kostur er fyrir gesti sem eiga bókanir eftir 1. september 2026,“ segir í tilkynningu Íslandshótela.
Reitir gera ráð fyrir góðri tekjuaukningu
Reitir hafa gert samkomulag við Íslandshótel um að nýr leigusamningur taki gildi 1. september. „Nýr leigusamningur var undirritaður 10. apríl 2025 og nær til 17 ára. Með samkomulagi hefur núverandi leigutaki fallið frá forleigurétti sínum og leigutími hans verið framlengdur til 31. ágúst 2026,“ segir í tilkynningu frá Reitum til Kauphallar.
Fasteignirnar séu samtals 26.500 fermetrar að stærð og ráðist verði í endurbætur á þeim sem feli meðal annars í sér endurnýjun á stórum hluta gistirýma sem séu samtals um 470 talsins.
Reitir áætla að árleg aukning tekna og rekstrarhagnaðar vegna leigusamninganna verði um 620 milljónir króna á fyrstu tveimur og hálfa ári leigutímans en um 720 milljónir króna eftir það. Davíð hjá Íslandshótelum vildi ekki tjá sig um innihald nýja samningsins og hvort hann fæli í sér kostnaðarhækkun miðað við samning Berjaya. Íslandshótel eru stærsta hótelkeðja landsins og munu reka nítján hótel eftir yfirtökuna.
Fréttin hefur verið uppfærð.