Á Breiðafirði tekur appelsínugul viðvörun gildi klukkan 11:00, á Vestfjörðum klukkan 17:00 og á Ströndum og Norðurlandi vestra klukkan 21:00 í kvöld.
Vindhraði á Stórhöfða í Vestmannaeyjum mældist tæpir 50 m/s klukkan í morgun. Búið er að loka hringveginum austan við Markarfljót og austur að Vík í Mýrdal og verður hann lokaður til 09:00 að minnsta kosti.
Á vef Vegagerðarinnar kemur einnig fram að þar sem spáð sé óvenjulágum þrýstingi yfir landinu í dag geti sjór gengið á land á strandsvæðum, meðal annars við Vík sem og á Djúpavogi, Breiðdalsvík og Stöðvarfirði sem og á Húsavík fyrir norðan.
Hefur veðrið áhrif á þig? Hvernig? Sendu okkur ábendingu og myndir á ritstjorn@visir.is eða sem Fréttaskot hér.
Fréttastofa fylgist með gangi mála í vaktinni hér að neðan. Ef vaktin birtist ekki er ráð að endurhlaða síðuna.
Hefur veðrið áhrif á þig? Hvernig? Sendu okkur ábendingu og myndir á ritstjorn@visir.is eða sem Fréttaskot hér.