Enski knattspyrnumaðurinn Kieran Trippier hefur gert samning við Wolves en hann kemur til félagsins á frjálsri sölu frá Newcastle.
Wolves átti hræðilegt tímabil í ensku úrvalsdeildinni á nýliðinni leiktíð, var á botninum nær allt tímabilið og endaði þar.
Trippier er reynslumikill leikmaður sem hefur einnig leikið með liðum á borð við Burnley, Tottenham og Atlético Madrid. Þá á hann að baki 54 landsleiki fyrir England.