Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra kynnti fyrirhugaðar breytingar á skipulagi lögreglu í vor. Að hennar sögn eru breytingarnar til þess gerðar að efla lögregluembættin á landinu. Þá á að fækka þeim úr níu niður í fjögur eða fimm. Breytingaráformin eru í samráðsgátt stjórnvalda. Húnaþing Vestra var fyrsta sveitarfélagið til þess að mótmæla þessum áformum.
„Við höfum miklar áhyggjur af þessum áformum sem eru kynnt núna í samráðsgáttinni. Það sem við höfum helst áhyggjur af er fyrst og síðast öryggi íbúa,“ segir Unnur Valborg Hilmarsdóttir, sveitarstjóri Húnaþings vestra. Hún telur mjög mikilvægt að hafa öfluga varðstöð lögreglu á Hvammstanga til þess að stytta viðbragðstíma vegna slysa á Holtavörðuheiði.
Fögur fyrirheit sem sést hafa áður
Í tilkynningu dómsmálaráðuneytisins segir að breytingarnar eigi að mynda stærri og öflugri lögregluembætti. Ekki eigi að fækka lögreglumönnum né lögreglustöðvum.
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra fjölluðu einnig um breytingaráformin. Þau segja að ítrekað sé minnst á að tilgangur breytinganna sé að efla lögregluna. Það séu fögur fyrirheit en því miður sé ekki góð reynsla af slíkum loforðum stjórnvalda.
„Því miður sanna dæmin það ef maður lítur aftur til baka í sögunni. Nærtækasta dæmið að taka eru loforð ríkisins að taka yfir málefni barna með fjölþættan vanda sem svo var dregið til baka nokkrum mánuðum seinna að stórum hluta til. Maður óttast alltaf þegar kynntar eru svona breytingar og fyrirheitin eru fögur að dæmin sanna að það er ekki alltaf hægt að treysta því,“ segir Unnur Valborg.