Kristín Ólöf Steinþórsdóttir, móðir 17 ára drengs sem stundar nám við Fjölbrautaskóla Suðurlands (FSu), er óánægð með það að nemendur fái fjarvistir meðan veður er svo slæmt að fella þarf niður ferðir strætisvagna.
Sjálf reyndi Kristín Ólöf að hringja í skólann í morgun til að tilkynna honum að sonur hennar kæmist ekki. „Ég fæ svarið að vegurinn sé opinn – en strætó er hættur að keyra í svona veðri.“
Kristín Ólöf og sonur hennar eru búsett í Hveragerði. FSu er á Selfossi og undir Ingólfsfjalli voru hviður tæplega 30 m/s í morgun.
Vegna þess að annars fengi hann fjarvist dreif hún sig þó af stað með son sinn í skólann. „Það er ekki hægt að fara að fá skróp svo við drífum okkur af stað,“ segir hún.
Rúmt svigrúm til fjarvista
Soffía Sveinsdóttir skólameistari FSu segir svona atvik metin í hverju tilfelli fyrir sig. Skólinn þjónusti stórt svæði en flestir búi nálægt honum.
„Langflestir nemendur eru á Selfossi eða hér í kring. Þetta er alltaf svolítið matsatriði hvað skal gera,“ segir Soffía.
Allt starfsfólk skólans komst til vinnu í dag en vegir voru færir.
„Það sem mér finnst skipta máli er að foreldrar og nemendur skoði stöðuna þar sem þau búa og það er enginn að neyða neinn til að mæta í skóla.“
Nemendur hafa ákveðið svigrúm til fjarvista, útskýrir hún. Hver nemandi getur misst allt að þrjár vikur úr skóla.
Fá leyfi þegar strætó fellur niður
Innt eftir því hvort það sé sanngjarnt að nemendur sem búi lengra frá og lendi oftar í því að vera tepptir vegna veðurs gangi á fjarvistarkvóta sinn segir Soffía að allt sé til umræðu. „En þetta eru ekki mörg tilvik á ári.“
Hún segir að FSu hafi þá þumalputtareglu að veita nemendum sem þurfa þjónustu strætó leyfi þegar almenningssamgöngur falla niður. „Við erum að reyna að koma til móts við fólk eins og við getum.“
Soffía segir að viðveruskráningar verði lagfærðar þar sem þörf er á.