Öryrkjabandalag Íslands hefur höfðað mál gegn Reykjavíkurborg vegna fjárhagsáætlunar fyrir árið 2026, því þar var ekki gert ráð fyrir fjölgun NPA-samninga þrátt fyrir að 42 samþykktar umsóknir biðu fjármögnunar. Bandalagið telur borgina hafa brotið gegn lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir.
„Að baki hverri umsókn er fatlaður einstaklingur sem borgin hefur þegar staðfest að eigi rétt á aðstoðinni en fær hana ekki. Fjárhagsáætlunin gerir ekki ráð fyrir neinni fjölgun NPA-samninga á árinu 2026 og borgin hefur sjálf staðfest að umsóknirnar verði ekki fjármagnaðar á árinu,“ segir í tilkynningu frá ÖBÍ.
Með málinu vill ÖBÍ fá úr því skorið hvort sveitarfélögum sé heimilt að samþykkja umsóknir um lögbundna þjónustu en skilja fólk síðan eftir á biðlista, árum saman, með því að fjármagna hana ekki.
„Reykjavíkurborg hefur sjálf viðurkennt rétt þessara 42 einstaklinga til aðstoðar en kýs samt að fjármagna hana ekki. Réttindi fatlaðs fólks eru ekki valkvæður útgjaldaliður sem má fresta milli ára, þau eru lögbundin og borginni ber að standa við þau,“ er haft eftir Ölmu Ýr Ingólfsdóttur, formanni ÖBÍ.
Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.