Orri Steinn Óskarsson átti flott tímabil í efstu deild Spánar í fótbolta þrátt fyrir að hann hafi verið að glíma við meiðsli.
Landsliðsfyrirliðinn skoraði níu mörk í 20 leikjum fyrir Real Sociedad en hann spilaði sjaldnast heilan leik.
Skoraði Orri mark á 92 mínútna fresti í deildinni og var með næstbestan árangur allra og var fyrir ofan þrjár stórstjörnur.
Kylian Mbappé var í þriðja sæti, Raphinha því fjórða og Robert Lewandowski því fimmta.