Aðeins hefur dregið úr rafleiðni í Múlakvísl síðan í hádeginu í dag. Vatnshæðarmælirinn sýnir ekki hækkun en áin er samt sem áður að breiða úr sér segir Elísabet Pálmadóttir, náttúruvásérfræðingur.
Lítið jökulhlaup hófst í Múlakvísl þann 18. ágúst og stóð í nokkra daga. Þá mældist töluverð gasmengun og há rafleiðni. Hún náði mest yfir 500 µS/cm þann 19. ágúst.
Annað jökulhlaup hefur verið í gerjun síðustu þrjá sólarhringa og rafleiðni mældist um 250 µS/cm í morgun. Venjulega er hún í kringum 100.
Varað við gasmengun
Í tilkynningu Veðurstofunnar segir að gasmengun mælist í grennd árinnar og ferðamenn eru því hvattir til að sýna aðgát.