Örlæti Trump andspænis ESB-áþján

Páll Vilhjálmsson skrifar:
Nýr samningur Bandaríkjanna, Grænlands og Danmerkur færir Grænland undir bandarísk yfirráð í öryggis- og varnarmálum. Trump Bandaríkjaforseti er örlátur. Hann ásælist ekki fiskimiðin Grænlendinga, ætlar ekki að rukka fyrir varnarmálafélagsskap landanna tveggja. Ekki munu Bandaríkin skipta sér af grænlenskum innanríkismálum, t.d. með því að setja lög og reglur í landinu. Þá verður ekki innheimtur Úkraínuskattur í þágu gresjuófriðarins í austri. Enn síður að Trump sendi hælisleitendur til Grænlands.
Fyrir rúmum þrem vikum stóð Ísland frammi fyrir tilboði Þorgerðar Katrínar utanríkisráðherra að Ísland gerði samning við Evrópusambandið um að Brussel tæki yfir landið og miðin. Í staðinn fengjum við þýska herþotu til landvarna og kannski aðra finnska, þegar hún er ekki biluð. Þjóðin sagði nei.
Nú gæti einhver sagt: hva, Grænlandssamninginn má ekki bera saman við ESB-aðild. En það er einmitt téður ráðherra utanríkismála, Þorgerður Katrín, sem í hálft ár hefur statt og stöðugt sagt Íslendinga þurfa ESB-aðild vegna Grænlandsáhuga Trump. Þorgerður Katrín vildi framselja Ísland Evrópusambandinu til slá á puttana á Trump, sem þó gekk ekki annað til en að tryggja þjóðaröryggi Bandaríkjanna.
Grænlandssamningurinn sýnir Grænlendingum fyllstu tillitssemi og virðingu. Kveðið er á um að hernaðaruppbygging Bandaríkjanna taki mið af hagsmunum veiðimanna og menningu Grænlendinga. Fyrirtæki og einstaklingar í Grænlandi fá forgang að vinnu og verktöku. Herstöðvar Bandaríkjanna verða sérstakar skipulagseiningar og grænlensk yfirvöld þurfa samþykki Bandaríkjanna fyrir mannvirkjum í nágrenni herstöðvanna. Örlæti Trump nær ekki aðeins til Grænlendinga. Fyrirtæki frá Nató- og ESB-ríkjum hafa heimild til starfsemi en síður fyrirtæki annarra ríkja (les: Rússland og Kína). Í samningnum er Grænlendingum í sjálfsvald sett að segja upp konungssambandi við Danmörku og yfirtaka skuldbindingar Dana gagnvart Bandaríkjunum.
Þorgerður Katrín og ríkisstjórnin eru heppin að þjóðin sagði nei 29. ágúst. Hefði utanríkisráðherra grátið til sín já, líkt og hún reyndi í beinni útsendingu á Bylgjunni daginn fyrir kjördag, væri Ísland á leið í ESB-ánauð á meðan Grænlandi byðist bandarískt gull og grænir skógar. Grænlandssamningurinn yrði til samanburðar við ESB-aðlögunarferlið og spurt hvort sé geðþekkara, bandarískt örlæti eða ESB-áþján.
Gengdarlausu ESB-daðri verður að linna hér á landi. Íslensk stjórnmálamenning er undirlögð þeim misskilningi að íslenskum hagsmunum sé best borgið í skjóli Evrópusambandsins. ESB-Evrópa veitir ekki afdrep eyju á Norður-Atlantshafi. Er fram í sækir verða tengslin við samband meginlandsríkja álfunnar dragbítur á íslenska þjóðarhagsmuni, EES-samningurinn sérstaklega.
Evrópusambandið er á skýru og afgerandi hnignunarferli. Pólitísk upplausn blasir við í stærstu ríkjum sambandsins. Stjórnmálaflokkar er til skamms tíma voru á jaðrinum taka sem óðast aðalsviðið. Uppgjör við misheppnaða hælisleitendastefnu stendur fyrir dyrum. Í austri eru aðeins vondar fréttir. Rússar munu sigra Úkraínu. Stærsta áskorun ESB-Evrópu næstu áratugi er sambýli með sterku Rússlandi. Pólitíska vangefni þarf til að trúa á íslenskt bjargræði í Brussel.