Þjóð skilgreinir sig út frá mörgu. Margt sameinar, raunar miklu fleira en sundrar. Við höldum með strákunum okkar og stelpunum okkar og hér á árum áður stóðum við jafnan með Eurovision-keppendunum okkar. Þeir eru fleiri sem aldrei fóru á Eurovision en fönguðu samt hjarta þjóðarinnar.Árið 2026 ætlar að verða okkur Íslendingum þungbært vegna þess að á þessu ári hafa gengið fyrir ætternisstapa tónlistarmenn sem ekki bara höfðu áhrif á æsku okkar, sem fæddust um eða upp úr síðustu öld, heldur jafnvel mótuðu allt okkar líf á sinn hátt.
Orðið á götunni: Jöfurinn er fallinn frá