Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, sem eitt sinn var Evrópusinni, hefur tekið sér stöðu með fylkingu Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrum formanns Alþýðubandalagsins og þá illskeyttasta hatursmanns Sjálfstæðisflokksins og formanns hans Davíðs Oddssonar. Ólafur hefur nú ákveðið að reyna að vingast við Sjálfstæðisflokkinn og umfaðmað forystu flokksins í hinni einkennilegu nei-baráttu sem gengur út á útúrsnúninga og afbökun staðreynda. Orðið á götunni er að áhugi Ólafs Ragnars á ríka fólkinu í Sjálfstæðisflokknum gangi út á peninga fyrir hann sjálfan og hugðarefni hans.
Orðið á götunni: Hver er hin raunverulega Guðrún?