Seltjarnarnesbær tapaði 521 milljón króna á A-hluta rekstrarins fyrstu sex mánuði þessa árs samkvæmt árshlutauppgjöri sem afgreitt var á fundi bæjarstjórnar nýlega. Þetta er talsvert meira tap en allt árið í fyrra sem þó var talin afleit útkoma. Skuldasöfnun á fyrri hluta ársins nam 880 milljónum króna og nú eru heildarskuldir Seltjarnarnesbæjar komnar í 9,5 milljarða króna. Öll rauð ljós blikka varðandi rekstur bæjarins sem lengi hefur verið slæmur en sennilega aldrei sem nú.
Orðið á götunni: Hrikaleg fjárhagsstaða Seltjarnarness – botnlaust tap og 9,5 milljarðar í skuld – verða fjárráðin tekin af bænum?