Ekki er að finna neina skipulega kostnaðar- og ábatagreiningu á íslensku krónunni gagnvart evru í nýbirtri skýrslu erlends sérfræðingahóps, sem Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra fól að athuga kosti Íslands í gjaldmiðlamálum.
Hæpið er því að fullyrða „að kostnaðurinn við íslensku krónuna sé verulegur og líklega að jafnaði meiri en sá ábati sem fylgir sjálfstæðum gjaldmiðli,“ eins og ráðherra gerði við birtingu skýrslunnar, það er fremur ályktun hans.
Í skýrslunni er dreginn fram ýmis kostnaður, sem Íslendingar bera vegna krónunnar, en þar er líka bent á ávinning sjálfstæðrar peningastefnu, sérstaklega í stóráföllum eins og bankahruninu 2008.
Eins er dregið fram að án sjálfstæðrar peningastefnu þyrfti að mæta hagsveiflum með öðrum hætti. Þar er aukinn agi í ríkisfjármálum nefndur, en einnig vinnumarkaður, launamyndun og þjóðhagsvarúð.
Evruupptaka er í skýrslunni sögð líkleg til að lækka vexti um allt að einu prósentustigi, en varað við að hún kynni að auka eftirspurn og verðbólguþrýsting, nema ríkisfjármálum sé beitt á móti.
Nánari umfjöllun má finna í Morgunblaðinu og Moggaappinu í dag á blaðsíðu 10.