Ónæði á Akranesi

Akranes í allri sinni fegurð
Mynd: Akraneskaupstaður
Skipuleggjendur Lilló Hardcore Fest hafa nú birt heildarlista yfir þær hljómsveitir sem koma fram á hátíðinni í ár. Lilló hefur verið haldið árlega á Akranesi síðan 2022 og hefur á þeim tíma fest sig í sessi sem einn af föstum viðburðum í íslensku harðkjarna- og pönksenunni, þar sem innlendar og erlendar hljómsveitir hafa komið fram og skemmt gestum.
Hátíðin árið 2026 fer fram í Keilusal Akraness dagana 30.–31. október.
Eftirfarandi hljómsveitir koma fram:
- I Adapt
- Dødsdømt (Noregi)
- Innvortis
- Gaddavír
- Gavin Portland
- Grafnár
- Dr. Gunni
- ROHT
- Nöll
- Ónæði
- Svarta María
- Þrumudætur
- Kex
Hátíðin er öllum aldurshópum opin og er miðalaus, en jafnframt er lögð rík áhersla á að þar séu hvorki vímuefni né tengsl við styrktaraðila.