Ivan Kaufmann, meirihlutaeigandi Vélfags, vandar íslenskum yfirvöldum ekki kveðjurnar í viðtali í Morgunblaðinu í dag. Málflutningur í máli Vélfags gegn ríkinu fór fram í Hæstarétti í gær vegna viðskiptaþvingana sem Vélfag sætti af hálfu íslenskra stjórnvalda.
Ástæðan eru meint tengsl Kaufmann við rússneskt félag sem talið er vera hluti af svokölluðum skuggaflota Rússa. Hann bendir á í viðtalinu að 40 manns hafi misst vinnuna og fyrirtæki hans verið eyðilagt.
„En það eru fleiri hlutir sem hægt er að berjast fyrir eins og orðspori fólks, þar á meðal mínu. Ég hef verið sakaður um að vera glæpamaður, njósnari á vegum FSB og að vera allt í öllu hjá skuggaflotanum. Þennan skaða þarf að leiðrétta,“ segir hann við Morgunblaðið í dag en FSB er rússneska öryggisþjónustan.
Í viðtalinu er farið yfir áhrif málsins á hann og fyrirtæki hans og bendir hann á að nokkrir bankar og tryggingafélög hafi hætt viðskiptum við hann. Þá hafi börn hans orðið fyrir aðkasti og verið kölluð „rússneskar hórur“.
„Ég er eyðilagður, sorgmæddur og hef orðið fyrir miklum vonbrigðum með kerfið hér á Íslandi,“ segir Ivan við Morgunblaðið þar sem nánar er rætt við hann.