Séra Arna Ýrr Sigurðardóttir segir gjörninginn ekki hafa verið á vegum kirkjunnar í samtali við fréttastofu. Í myndefni sem lögregla hefur skoðað sjáist tveir menn vinna skemmdarverkin í skjóli nætur. Lögregla rannsakar nú málið sem hatursglæp.
Grafarvogskirkja hefur sagst ætla að standa fyrir því að regnbogafáninn verði málaður aftur við kirkjuna á næstu dögum.
„Við erum stolt af Pride fánanum í tröppunum okkar og munum á næstu dögum vinda okkur í að mála hann aftur á tröppurnar og þiggjum sannarlega hjálp frá ykkur við það,“ segir í Facebook-færslu á vegum kirkjunnar.
Lögreglu hafi borist einhverjar ábendingar um málið en verið sé að vinna úr þeim. Enginn hafi verið yfirheyrður að svo stöddu að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Á upptöku úr eftirlitsmyndavélum sjáist tveir menn við verknaðinn en hún getur ekki fullyrt hvort fleiri hafi komið að skemmdarverkinu.
Atvikið hefur vakið þónokkra umræðu en Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra blandaði sér í umræðuna og sagði:
„Það er sorglegt að horfa upp á (og hlusta á) fólk sem virðist vilja fela fánanum nýtt og ógeðfellt hlutverk. Gera hann að tákni sundrungar og óvildar í garð tiltekinna hópa í samfélaginu. Við munum ekki leyfa því að gerast. Við ætlum ekki að vakna upp við þá martröð einn daginn að popúlistar og rasistar hafi náð að endurskilgreina hlutverk íslenska fánans og hvað það þýðir að flagga honum,“ í færslu á Facebook-síðu sinni.