Jón Þorsteinn Oddleifsson, forstjóri Beru, móðurfélags Ölgerðarinnar, segir að komi í ljós að eitthvað í framgöngu fyrirtækisins á markaðnum standist ekki skoðun muni fyrirtækið taka það til endurskoðunar.Fjallað var um málið í fréttaskýringaþættinum Kveik á RÚV í gærkvöldi. Þar stigu fram forsvarsmenn handverksbrugghúsa og smærri innflutningsaðila og sökuðu Ölgerðina um að misnota markaðsráðandi stöðu, bæði hvað varðar sölu áfengra drykkja og óáfengra.
Ölgerðin svarar fyrir sig eftir umfjöllun Kveiks í gærkvöldi