„Það er nú til frasi sem heitir: „ríki í ríkinu“. Ætli Ölgerðin sé ekki bara: „ríkið í ríkinu,“ segir Arnar Sigurðsson, vínkaupmaður í Santé, þegar hann er spurður um stærð Ölgerðarinnar á smásölumarkaði áfengis á Íslandi í gegnum ÁTVR.
Samkeppniseftirlitið réðst í húsleit hjá Ölgerðinni í síðustu viku vegna meintrar misnotkunar fyrirtækisins á markaðsráðandi stöðu. Stofnunin sagði frá því í fréttatilkynningu. Fréttaskýringaþátturinn Kveikur fjallaði ítarlega um meint brot Ölgerðarinnar í gær.
Arnar Sigurðsson hefur í gegnum árin verið gagnrýninn á ÁTVR á opinberum vettvangi. Hann er samkeppnisaðili ÁTVR og telur að smásala áfengis eigi að vera á frjálsum markaði á Íslandi. Arnar þekkir áfengismarkaðinn á Íslandi vel og er gagnrýninn á innkaupakerfi ÁTVR.
Rætt er við Arnar í fréttaskýringaþættinum Þetta helst. Þáttinn má hlusta á hér:
Ölgerðin selur einn af hverjum tveimur bjórum
Sala áfengra drykkja frá Ölgerðinni nemur um helmingi af allri sölu áfengis hjá ÁTVR. Þetta kemur fram í sölutölum fyrir síðasta ár. 50,3 prósent af öllum seldum áfengiseiningum sem ÁTVR selur og 47 prósent af öllum seldum lítrum koma frá Ölgerðinni. Þetta er bæði áfengi sem Ölgerðin framleiðir, til dæmis bjór, en einnig áfengi sem Ölgerðin flytur inn og selur. Meirihluti af seldum lítrum áfengis í vínbúðum ÁTVR er bjór, samtals um 77 prósent af seldum lítrum.
Hlutdeild Ölgerðarinnar í bjórsölu ÁTVR er rúmlega helmingur eða 52 prósent. Bæði er um að ræða vinsælan íslenskan bjór sem Ölgerðin framleiðir, eins og Gull og Gull lite, og innfluttan bjór eins og til dæmis hinn írska Guinness.
Þannig má segja, til einföldunar, að einn af hverjum tveimur bjórum sem ÁTVR selur komi frá Ölgerðinni.
Engin sérmeðferð segir forstjórinn
Hvernig kom Ölgerðin sér í þessa stöðu innan ÁTVR og er þetta viðskiptasamband óeðlilegt? Þorgerður Kristín Þráinsdóttir er forstjóri ÁTVR og segir að Ölgerðin njóti ekki neinna sérréttinda hjá ríkisfyrirtækinu. „Nei, það eru allir jafnir þegar kemur að ÁTVR. Regluverk ÁTVR er gert þannig að það er mjög bundið bæði lögum, reglugerðum og reglum.“
Hún segir að umfang sölunnar á vörum Ölgerðarinnar ráðist af framboði og eftirspurn.
Kaup á eigin vörum virðast tíðkast
Arnar Sigurðsson nefnir að það hafi lengi tíðkast að birgjar eða heildsalar áfengis kaupi sjálfir eigin vörur í stórum stíl í ÁTVR til að búa til betri sölutölur.
Samkvæmt svörum frá bæði Ölgerðinni og ÁTVR er þetta rétt. Áfengisheildsalar hafa stundað þetta í gegnum árin og gera enn.
Í svörum Ölgerðarinnar til Kveiks þar sem spurt er hvort fyrirtækið hafi stundað það að kaupa eigin vörur í ÁTVR segir Ölgerðin að fyrirtækið hafi gert þetta á sínum tíma en að það tíðkist ekki lengur.
Orðrétt segir fyrirtækið: „Ölgerðin hefur ekki beitt þessari aðferð í um áratug eða svo. Við sjáum hins vegar í fyrirliggjandi sölugögnum frá ÁTVR að þetta virðist enn vera viðtekin venja meðal ýmissa samkeppnisaðila okkar.“ Ölgerðin nefnir þarna að önnur fyrirtæki sem selja áfengi til ÁTVR stundi þetta.
Þorgerður forstjóri ÁTVR er spurð að þessu og segir hún að ýmislegt bendi til þess að einhverjir birgjar kaupi eigin vörur. Hún segir þó að ekkert bendi til þess að Ölgerðin geri þetta nú eða hafi gert á síðustu árum.