Ó­létt 17 ára, kærastinn með krabba­mein, vann fjór­falt, meistara­nám og flott starf - Vísir

Ó­létt 17 ára, kærastinn með krabba­mein, vann fjór­falt, meistara­nám og flott starf - Vísir

Ó­létt 17 ára, kærastinn með krabba­mein, vann fjór­falt, meistara­nám og flott starf - Vísir

Eins og saga dagsins gerir sannarlega.

Í dag kynnumst við konu – Auði Hrefnu Guðmundsdóttur – varð ólétt 17 ára, átti þá kærasta sem fékk krabbamein, vann um tíma í fjórum vinnum, fór í tvö meistaranám, á flottan starfsframa og starfar nú sem framkvæmastjóri UN Global Compact á Íslandi.

Sumsé: Vinnur fyrir Sameinuðu þjóðirnar.

Frekar smart.

Auður segir það gjörólíka upplifun að eignast börn á ólíkum aldursskeiðum en í dag á Auður þrjú börn og eitt barnabarn. Auður er gift Ólafi Reyni Guðmundssyni lögfræðingi; manni sem hún kynntist á blindu stefnumóti og hélt reyndar að væri túristi fyrst þegar hún hitti hann.

En hvernig ætli Auður hafi afrekað þetta allt saman?

„Þegar upp er staðið held ég satt best að segja að ég hafi fengið starfið sem ég er í í dag út á þennan fjölbreytta feril og þrautseigjuna. 

Að byggja eitthvað upp frá grunni er langhlaup – og lífsreynslan hefur kennt mér að gefast ekki upp.“ 

Auður kynntist stóru ástinni sinni, Ólafi Reyni Guðmundssyni lögfræðingi, á blindu stefnumóti og hélt þá að hann væri túristi. Börnin þeirra eru Ásgeir Hrafn (f. 2014) og Hrefna Karólína (f.2019) en fyrir átti Auður Helgu Maríu (f.1998).

Uppátækjasöm

Auður lýsir sér sem nokkuð uppátækjasömu barni.

„Þegar ég var fimm ára í leikskóla leiddist mér svolítið einn daginn. Frænka mín, sem var ári eldri og nýbyrjuð í sex ára bekk í grunnskóla, ákvað bara að koma og sækja mig á leikskólann! Þetta voru aðrir tímar, enginn stoppaði sex ára krakka að leiða fimm ára út. En þegar heim var komið áttuðum við okkur á að við værum líklega í vondum málum, svo hún faldi mig bara inni í fataskáp. Á meðan var náttúrlega allt farið á annan endann í leitinni að mér,“ segir Auður og hlær.

Auður fæddist reyndar í Gautaborg í Svíþjóð, þegar foreldrar hennar – Guðmundur Már Björgvinsson og Júlíana Petra Þorvaldsdóttir – voru þar í námi. Auður var samt ung þegar hún fluttist til Íslands, þar sem hún ólst upp í Árbænum.

Auður er miðjubarn; á tvo bræður og segist muna ótrúlega langt aftur í æskuna. Enda fylgir með önnur leikskólasaga. Þegar Auður fór í vettvangsferð með leikskólanum í strætó, sá hús ömmu og afa og ákvað einfaldlega að fara þá úr strætónum.

„Þar sat ég róleg á tröppunum og beið eftir að amma kæmi heim úr vinnunni. Ég var aldrei hrædd við að fylgja mínu eigin innsæi en auðvitað fékk amma algjört sjokk þegar hún sá mig.“

Tólf ára vann Auður við að passa tveggja ára barn frá klukkan 8 á morgnana til klukkan 16 á daginn; í raun barn að passa barn.

„Fór með það í sund og svona,“ segir Auður en bætir við:

Ég lærði einfaldlega snemma að vinna og vildi líka eiga pening til þess að geta keypt mér eitthvað eða farið í bíó. 

Ég var svolítið sjálfstæð þegar kemur að þessu öllu saman.“

Auður lýsir sér sem uppátækjasamri og augljóslega kátu barni. Sem lærði snemma að vinna enda algengara hér í den að til dæmis væru mjög ungar stúlkur með lítil börn í pössun allan daginn. Auður rifjar líka upp tíma þar sem enginn kippti sér upp við það að barn sótti barn á leikskólann.

Tilbúin í mömmuhlutverkið

Þegar Auður var nýbyrjuð í Menntaskólanum við Sund tók lífið óvænta stefnu. Því þá varð hún ólétt að sínu fyrsta barni, eitthvað sem hún og ungi kærastinn hennar höfðu svo sannarlega ekki skipulagt.

„En ég upplifði aldrei neitt sjokk. Mér fannst þetta aldrei íþyngjandi. Ég ætlaði mér allan tímann að klára námið og fann strax þessa miklu ábyrgðartilfinningu,“ segir hún.

En stuttu síðar dynur yfir annað áfall: Kærastinn, þá aðeins 19 ára gamall, greinist með krabbamein.

„Ég gisti hjá honum á spítalanum. Ég var svo ung að ég var í mæðraeftirliti á Landspítalanum líka. Einn morguninn í byrjun desember, í brjáluðu fannfergi og stormi, labbaði ég í gegnum þessi frægu neðanjarðargöng yfir á kvennadeildina – á peysunni og inniskónum. Ljósmóðirin starði á mig gáttuð og spurði hvers vegna í ósköpunum ég væri svona klædd. Ég sagði henni bara eins og var: 

Ég er að koma af krabbameinsdeildinni af því að kærastinn minn er þar í lyfjameðferð. 

Ég hafði ekkert verið að velta því fyrir mér að segja frá þessu, ég var bara að takast á við daginn.“

Fullorðna fólkið í kringum Auði fékk því margt meira sjokk en nokkurn tíma hún af stöðunni. Auður rifjar til dæmis upp þegar hún missti aðeins tökin á einu faginu í skólanum: Yndislestri.

„Námsráðgjafinn kallaði mig inn og spurði hvað væri í gangi. Þegar ég sagði henni stöðuna brá henni svo að hún ræsti út alla kennarana mína. Þau bjuggu til sérstakan námsferil fyrir mig svo ég gæti tekið mér árs hlé og klárað síðan stúdentsprófið utan skóla.“

Veikindi kærastans voru alvarleg. Enda þurfti hann að gangast undir aflimun á fæti og ljúka strangri meðferð.

Auður var 17 ára þegar hún varð ófrísk en fékk einhvern veginn ekkert sjokk og tókst líka á við það af æðruleysi að kærastinn fékk krabbamein og missti fót. Aldrei hvarflaði það að henni að hætta í námi. Hér nokkrar stúdentsmyndir með foreldrum, bræðum og Helgu Maríu.

Aðeins tvítug voru þau samt búin að koma sér fyrir í sinni eigin íbúð, sinntu þar foreldrahlutverkinu og heimilishaldinu, hann að jafna sig eftir fótamissi og krabbamein og Auður á fullu í námi.

„Á meðan á þessu stóð pældi maður lítið í eigin líðan, maður fór bara í að leysa verkefnin. En eftir á að hyggja var þetta ótrúleg lífsreynsla. Erfiðasti hlutinn var kannski stuðningurinn eftir á – þegar meðferðinni lauk og allir draumar ungs manns höfðu umturnast. Á þessum tíma var Kraftur rétt að verða til og kerfið vissi ekkert almennilega hvernig ætti að halda utan um svona ungt fólk.“

Þegar Auður var einstæð móðir vann hún oft myrkranna á milli, jafnvel í fjórum vinnum og tók að sér alls konar til að ná endum saman. Henni þótti því verulega vænt um það um daginn þegar frumburðurinn nefndi óvænt að aldrei hafi hún fundið fyrir peningaleysi í æsku.Vísir/Anton Brink

Útlönd og útsjónarsemi

Leiðir ungu skötuhjúanna skildu þó árið 2003. Auður var ákveðin í að halda áfram í námi, lauk kennaranámi við Kennaraháskólann 2004 en áður en því lauk fór hún í Erasmus-skiptinám til Gautaborgar. Dóttirin Helga María var auðvitað með.

„Það var gamall draumur hjá mér að búa á ný í Svíþjóð. En nokkuð broslegt líka að rifja upp að það var í þessu skiptinámi þar sem áhugi minn á barnarétti og Sameinuðu þjóðunum kviknaði fyrst.“

Aftur pakkaði einstæða móðirin niður árið 2004. En þá fluttu þær mæðgur til Kaupmannahafnar þar sem Auður var í meistaranámi í menntunarsálfræði.

„Þetta voru yndisleg ár,“ segir Auður um þennan tíma.

„Við vorum bara tvær saman mæðgurnar, áttum okkar fasta hygge-kvöld á föstudögum, og hún fylgdi mér alls staðar.“

Gullfallegar mæðgur: Auður og Helga María, sem nú er orðin móðir sjálf og Auður því orðin amma. Auður segir árin í Kaupmannahöfn hafi verið yndislegur tími hjá þeim mæðgum, Helga María fór með henni út um allt og þær áttu sín hygge-kvöld.

Eftir að heim var komið á ný fór Auður að kenna í sínum gamla grunnskóla, Ártúnsskóla. Hún segir það hafa verið ótrúlega magnað að ganga inn í skólann sinn á ný, nú sem kennari, og jafnvel að kenna með mörgu af því fólki sem eitt sinn kenndi með henni.

Árið 2007 færði Auður sig yfir í Háskólann í Reykjavík. Þar starfaði hún í sex ár hjá Opna háskólanum í HR og seinna í Tækni-og verkfræðideild sem verkefnastjóri MPM-námsins.

En til að ná endum saman þarf einstæð móðir meira en eitt starf.

Ég vann oft í þremur eða fjórum störfum samtímis. 

Ég kenndi, vann í vinnuskólanum á sumrin, þreif skrifstofur og heima hjá fólki, stóð á barnum í Breiðfirðingabúð um helgar og tók að mér einkakennslu“. 

Unga móðirin lærði líka að vera útsjónarsöm.

„Í hruninu 2008 fór allt í mínus hjá mér eins og svo mörgum. Ég man að mamma vinar dóttur minnar bakaði afmælistertu fyrir hana og ég reitti arfa hjá henni í staðinn. Við fórum í íbúðaskipti til að komast út og tjölduðum innanlands,“ segir Auður en rifjar líka upp hvernig allir hjálpuðust að.

„Ég man að ég var sem dæmi að kenna litla bróður vinkonu minnar einn veturinn fyrir samræmdu prófin og var á sama tíma að skipuleggja barnaafmæli dóttur minnar. Það var eitthvað lítill tími til þess að gera þetta allt saman og þá bakaði bara mamma þessarar vinkonu minnar afmæliskökuna á meðan ég kenndi.“

Svona gekk einhvern veginn allt upp á endanum, ekki síst með aðstoð vina og vanamanna.

Mér þótti svo vænt um það um daginn þegar dóttir mín sagði við mig: 

Mamma, ég fann aldrei fyrir því að við ættum ekki pening. Þótt staðreyndin væri sú að oft átti ég ekki krónu.“

Auður lauk fyrst kennaranámi og kenndi í gamla grunnskólanum sínum, síðar fór hún í tvö meistaranám og um tíma starfaði hún hjá Opna Háskólanum í HR og síðar hjá Landsbankanum. Þegar hún allt í einu rakst á auglýsingu um spennandi starf hjá Sameinuðu þjóðunum.Vísir/Anton Brink

Ástin og fleiri hlutverk

Árið 2011 lét Auður gamlan draum rætast og hóf meistaranám í lögfræði við HR samhliða vinnu – og varð fyrsti grunnskólakennarinn til að ljúka þeirri gráðu.

Á sama tíma leiddi hún gerð forvarnarteiknimyndarinnar Leyndarmálið gegn kynferðisofbeldi, sem enn er sýnd öllum börnum í 3. bekk á landinu og Auður viðurkennir að vera afar stolt af.

Árið 2013 réð hún sig síðan sem sérfræðing í mannauðsdeild Landsbankans og starfaði þar í tæpan áratug.

En bíddu, bíddu, bíddu…

Lífið er nú ekki bara vinna og starfsframi: Hvað með ástina?

Jú, hún svo sannarlega bankaði upp á hjá Auði. Það var árið 2012 þegar sameiginleg vinkona Auðar og Ólafs kom þeim saman á blint stefnumót.

„Þetta var fyrir tíma Tinder. Ég neitaði að fletta honum upp á Facebook, vildi bara mæta fordómalaus,“ segir Auður og skellir upp úr.

Ákveðið var að hittast á kaffihúsi.

„Á þessum tíma var túrisminn að springa út. Fólk stoppaði mig oft til að spyrja til vegar. Allt í einu kemur maður labbandi í regnjakka með bakpoka, alveg eins og týpískur ferðamaður. Ég hugsaði með mér: Nei, ekki núna, ég er að fara á stefnumót!“ hugsaði Auður með sér.

Hafði einfaldlega ekki tíma í að svara enn einum túristanum.

„En svo var þetta bara Ólafur Reynir. Við náðum strax ótrúlega vel saman,“ segir Auður kampakát og klær.

Auður og Ólafur kynntust fyrir tíma Tinder og segir Auður að hún hafi ekki einu sinni viljað fletta honum upp á Facebook fyrir fyrsta stefnumótið. Sem kom til fyrir tilstilli vinkonu. Fjölskyldan stækkaði, á sama tíma og starfsframinn tók líka gott flug.

Auður og Ólafur giftu sig árið 2022 og eiga saman tvö börn: Ásgeir Hrafn sem er tólf ára og Hrefnu Karólínu sem er að verða sjö ára.

Þetta þýðir auðvitað nokkurn aldursmun hjá systkinunum því nú er Helga María 27 ára, orðin móðir sjálf og Auður því orðin amma!

Auður lýsir vel hvernig tíðarandinn í samfélaginu getur haft gríðarleg áhrif á það hvernig mæður upplifa mömmuhlutverkið.

„Að eignast börn á gjörólíkum æviskeiðum var ótrúleg lífsreynsla. Sautján ára var enginn á samfélagsmiðlum. Maður fékk eina bók með myndum og fylgdi bara innsæinu. 

Þrjátíu og fjögurra ára fann ég skyndilega fyrir gríðarlegri pressu: allir áttu að kaupa sömu hlutina, fara á réttu jóganámskeiðin og allt átti að vera fullkomið. 

En þegar sú yngsta fæddist var ég orðin þrjátíu og níu ára og búin að sjá í gegnum þetta. Ég sagði bara pass við samanburðinum, neitaði að láta vigta mig og fór aftur á innsæið. Það hefur alltaf reynst mér best.“

Með Ásgeiri Hrafni og Hrefnu Karólínu. Auður lýsir breyttum tíðaranda vel þegar hún lýsir því hvernig var að eignast börn á ólíkum æviskeiðum. Enginn var á samfélagsmiðlum þegar hún var 17 ára og þá gilti mest að fylgja innsæinu. Þrjátíu og fjögurra ára fann hún fyrir gríðarlegri pressu: Allir áttu að kaupa það sama og fara á réttu námskeiðin. 39 ára - þegar yngsta barnið fæddist - var hún þó búin að sjá í gegnum þetta og fór aftur að treysta fyrst og fremst á innsæið sitt. Það sé það sem virki alltaf best.Vísir/Anton Brink, einkasafn

Að gefast aldrei upp

Það er ótrúlega spennandi að hlusta á hvernig Auður fékk starfið sitt sem framkvæmdastjóri UN Global Compact á Íslandi.

Því höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna eru í New York og ráðningaferlið því ólíkt því sem oftast er á Íslandi.

Auður þurfti til dæmis að mæta í mörg viðtöl á netinu, talandi ensku.

„Ég viðurkenni að ég efaðist stundum um hvort ég hefði næga sérþekkingu á sjálfbærni miðað við aðra umsækjendur. En starfið snýst um að byggja upp, leiða saman ólíka aðila og gefast ekki upp. Ég held að þessi breiði bakgrunnur minn og lífsreynslan hafi ráðið úrslitum.“

UN Global Compact er stærsta sjálfbærniframtak heims á vegum Sameinuðu þjóðanna og byggir á tíu grundvallarviðmiðum sem snúa að mannréttindum, vinnurétti, umhverfismálum og aðgerðum gegn spillingu.

„Hlutverk okkar er að efla rödd íslensks atvinnulífs á alþjóðavettvangi Sameinuðu þjóðanna. Við eigum ekki alltaf að vera að finna upp hjólið hér heima í einangrun, heldur getum við sótt alþjóðleg tæki, tól og mælikvarða beint til Sameinuðu þjóðanna og aðlagað að okkar rekstrarumhverfi. Á sama tíma hefur íslenskt atvinnulíf heilmikið fram að færa sem aðrar þjóðir geta lært af – ekki síst þegar kemur að grænni orku og jafnrétti kynjanna.“

Auður segir UN Global Compact á Íslandi vera kjörinn vettvang fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki sem vilja taka sín fyrstu sjálfbærniskref. Það séu ekki aðeins stóru fyrirtækin sem séu að taka þátt.

„Margir upplifa sjálfbærnikröfurnar sem flókinn frumskóg. Þess vegna er svo mikilvægt að fyrirtæki hafi vettvang til að átta sig betur á stöðunni og hvernig er hægt að vinna með sjálfbærni. Hjá UN Global Compact veitum við fyrirtækjum skýran ramma og fræðslu sem er opin öllu starfsfólki. Enda má sjálfbærni ekki vera eitthvað hliðarverkefni uppi í hillu. Sjálfbærni þarf að vera hluti af kjarnarekstrinum.“

Auður hefur ferðast víða og gerir enn. Því ferðalög fylgja þessu spennandi starfi sem hún sinnir nú sem framkvæmdastjóri UN Global Compact á Íslandi. Auður segir UN Global Compact mikilvæga gátt fyrir fyrirtæki af öllum stærðum og gerðum að taka þátt í og virkjast í sjálfbærni.

Þegar Auður horfir til baka yfir farinn veg er ljóst að hún lítur ekki á mótlætið sem hindrun, heldur styrk.

„Þegar ég tala við fólk á alþjóðavettvangi sem starfar fyrir Sameinuðu þjóðirnar og segi að ég sé orðin amma, þá trúir fólk því varla. Vissulega búum við á Íslandi við sterkt stuðningsnet og leikskólakerfi sem gerir konum kleift að mennta sig og vinna, jafnvel þótt kerfið sé aldrei fullkomið.“

Hvaða skilaboð myndi hún gefa ungu fólki og konum sem standa frammi fyrir stórum áskorunum eða finnst þær þurfa að velja á milli fjölskyldu og starfsframa?

„Ekki láta neitt stoppa þig,“ svarar hún ákveðin.

Þetta er oft drulluerfitt og það fylgir því streita að hafa marga bolta á lofti. 

En ef þú býrð yfir seiglu, nýtir stuðningsnetið þitt og hlustar á þitt eigið innsæi, þá bjargast þetta alltaf. 

Lífsreynslan er aldrei til einskis – hún er dýrmætasta verkfærið sem þú tekur með þér inn í framtíðina.“

#krabbamein #kærastinn #með #ára #ólétt


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262949890d/o-lett-17-ara-kaerastinn-med-krabba-mein-i-fjorum-vinnum-meistara-nam-og-flott-starf

📰 Aðrar fréttir

Sumarvinnan skapar samkeppnisforskot sem ekki má glutra niður
📅 19.10.2026 👁️ 0
Sumarvinnan skapar samkeppnisforskot sem ekki má glutra niður
Rannveig Rist lét af störfum sem forstjóri álvers Rio Tinto í Straumsvík í maí en hún hafði þá gegnt starfinu í um 30 ár. Á ársfundi Samtaka atvinnulí...
Sveitar­fé­lagi ekki skylt að smala ágangs­fé úr skógræktar­landi - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 0
Sveitar­fé­lagi ekki skylt að smala ágangs­fé úr skógræktar­landi - Vísir
Hrefna Dagbjört Arnardóttir, eigandi jarðarinnar Óseyrar við Stöðvarfjörð, þar sem bæði er stunduð ferðaþjónustustarfsemi og skógrækt, höfðaði málið á...
Eldur í potti á Norðurbakka
📅 19.10.2026 👁️ 0
Eldur í potti á Norðurbakka
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins er í útkalli vegna elds á Norðurbakka í Hafnarfirði. Þar reyndist eldur hafa kviknað í potti. Vel gekk að slökkva eldi...
Eldur kom upp í verslun í Hafnar­firði - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 0
Eldur kom upp í verslun í Hafnar­firði - Vísir
Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir við Vísi að slökkviliðinu hafi borist útkallið á sjöunda tímanum en...
Túlkun Landsréttar á samþykki á skjön við almenningsálit
📅 19.10.2026 👁️ 0
Túlkun Landsréttar á samþykki á skjön við almenningsálit
Hörð viðbrögð við sýknudómi í nauðgunarmáli fyrir Landsrétti benda til þess að hann sé á skjön við almennan skilning á samþykki. Sérfræðingur segir Hæ...
Ukrainians dying because US restricting intelligence sharing, Zelensky adviser tells BBC
📅 19.10.2026 👁️ 0
Ukrainians dying because US restricting intelligence sharing, Zelensky adviser tells BBC
Serhii Beskrestnov says there has not been enough time to warn people about incoming missile attacks. The White House said there had been no changes t...
Geta nýtt Ikea sem neyðarskýli
📅 19.10.2026 👁️ 0
Geta nýtt Ikea sem neyðarskýli
Hægt verður að nýta allar sex verslanir Ikea í Danmörku sem neyðarskýli eða bráðabirgðasjúkrahús komi til hamfara, árása á mikilvæga innviði eða flóða...
Matthías opnar sig um erfiða baráttu – Vill koma mikilvægum skilaboðum til annarra karla
📅 19.10.2026 👁️ 2
Matthías opnar sig um erfiða baráttu – Vill koma mikilvægum skilaboðum til annarra karla
Matthías Freyr Matthíasson, 46 ára, greindist með ristilkrabbamein í apríl síðastliðnum eftir að hafa glímt við mikla kviðverki um nokkurt skeið. Sköm...
Fyrrum Sósíal­istar stýra Ungum vinstri grænum - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Fyrrum Sósíal­istar stýra Ungum vinstri grænum - Vísir
Um helgina var greint frá því að Ung vinstri græn (UVG) hefði kosið sér nýja forystu.  Hinn 26 ára Ari Orrason var kjörinn formaður en í þingkosningum...
Íslendingur í París: „Á laugardaginn varð allt svolítið „crazy“ í borginni“
📅 19.10.2026 👁️ 2
Íslendingur í París: „Á laugardaginn varð allt svolítið „crazy“ í borginni“
Íslenskur skiptinemi sem býr í París í Frakklandi fann lítið fyrir mótmælunum sem hafa verið í borginni, þar til um helgina. Mótmælin hafa stigmagnast...
Fara fram á út­göngu­bann í nokkrum frönskum borgum - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 2
Fara fram á út­göngu­bann í nokkrum frönskum borgum - Vísir
Í umfjöllun Guardian kemur fram að ríkisstjórn Frakklands hafi fundað í dag vegna ástandsins í landinu. Líkt og fram hefur komið spruttu óeirðirnar up...
Lögregla búin að hafa uppi á öllum grunuðum um hópárás
📅 19.10.2026 👁️ 2
Lögregla búin að hafa uppi á öllum grunuðum um hópárás
Lögreglan á Suðurnesjum hefur haft uppi á öllum fimm sem eru grunaðir um stórfellda hópárás í Reykjanesbæ fyrr í mánuðinum. Árásin átti sér stað í byr...
Teenager brutally beaten by group of five in Gran Canaria
📅 19.10.2026 👁️ 3
Teenager brutally beaten by group of five in Gran Canaria
A 16-year-old boy has suffered a broken arm and multiple injuries after allegedly being attacked by a group of five young people in Vecindario, Gran C...
„Leiðin­legt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
„Leiðin­legt þegar svona kemur upp og Ísland.is verður fyrir höggi“ - Vísir
Þetta segir Birna Íris Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Stafræns Íslands, í samtali við fréttastofu. Tilefnið er tilkynning lögreglu í síðustu viku þar se...
Gísli Freyr og Þórður Snær fara yfir stöðuna eftir brotthvarf Jóns - „Það er ekki til að slá á sögur um klíkumyndun“
📅 19.10.2026 👁️ 2
Gísli Freyr og Þórður Snær fara yfir stöðuna eftir brotthvarf Jóns - „Það er ekki til að slá á sögur um klíkumyndun“
Gísli Freyr Valdórsson, umsjónarmaður Þjóðmála, telur að það sé skrítin stemning í þingflokki Viðreisnar og að það verði gerðar breytingar á forystu f...
Ljósmyndarar saka lögregluna um árásir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Ljósmyndarar saka lögregluna um árásir
Ljósmyndarar saka lögregluna um árásir Yfirvöld í Danmörku hefja rann­sókn eftir að frétta­ljós­mynd­arar lýsa árásum af hálfu lög­regl­unnar. Ljós­my...
For­ystan sé búin að missa klefann - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
For­ystan sé búin að missa klefann - Vísir
Þetta segir Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, formaður Norðausturráðs Viðreisnar og meðlimur í stjórn flokksins, í skoðanagrein sem birtist á Vísi í dag. ...
Hafi í­hugað að gefast upp síðustu vikur - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 0
Hafi í­hugað að gefast upp síðustu vikur - Vísir
Þetta segir Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir, formaður Norðausturráðs Viðreisnar og meðlimur í stjórn flokksins, í skoðanagrein sem birtist á Vísi í dag. ...
Wolt-sendlar íhuga næstu skref í kjarabaráttu
📅 19.10.2026 👁️ 3
Wolt-sendlar íhuga næstu skref í kjarabaráttu
Um sex hundruð sendlar starfa hjá Wolt hér á landi.Hópur þeirra lagði niður störf um miðjan september þegar laun þeirra voru lækkuð um allt að 40 prós...
Ísaksskóli eignast Ísaksskóla - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 3
Ísaksskóli eignast Ísaksskóla - Vísir
Frá þessu er greint í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Þar segir að kaupin byggi á endurkauparétti sem samið var um við Reykjavíkurborg árið 2011.  Sk...
Játaði innflutning á kratom og sagðist fá sér það eins og kaffi
📅 19.10.2026 👁️ 3
Játaði innflutning á kratom og sagðist fá sér það eins og kaffi
Héraðsdómur Vesturlands hefur dæmt mann um þrítugt til þriggja mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir innflutning á fíkniefninu kratom. Dómari...
Ex-OpenAI worker accused of planting device had Saudi support says court filing
📅 19.10.2026 👁️ 3
Ex-OpenAI worker accused of planting device had Saudi support says court filing
The Saudi government did not immediately respond to BBC requests for comment.
Tvö bandarísk herskip í Jökulfjörðum
📅 19.10.2026 👁️ 3
Tvö bandarísk herskip í Jökulfjörðum
Tvö herskip bandaríska sjóhersins eru í Jökulfjörðum: skipin Hos Red Rock og Hos Red Dawn.Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni hafa þau leyfi s...
Inga um ótta kennara: „Staðan er graf­alvar­leg“ - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Inga um ótta kennara: „Staðan er graf­alvar­leg“ - Vísir
Þetta kom fram í svari ráðherra við fyrirspurn Snorra Mássonar, þingmanns Miðflokksins, á Alþingi í dag. Snorri vísaði til fréttaflutnings síðustu vik...
Katrín Oddsdóttir: Þetta er eins og ef einhver heimilaði kjúklingabú í garðinum þínum án þess að spyrja þig
📅 19.10.2026 👁️ 4
Katrín Oddsdóttir: Þetta er eins og ef einhver heimilaði kjúklingabú í garðinum þínum án þess að spyrja þig
Lykilstarfsmenn fyrirtækja og samtaka í sjávarútvegi fara þaðan beint til starfa í ráðuneyti og stofnunum sem koma að lagasetningu og leyfisveitingum....
Trú og heift: Keppinautar í öldungadeild Texas með ólíka framtíðarsýn
📅 19.10.2026 👁️ 4
Trú og heift: Keppinautar í öldungadeild Texas með ólíka framtíðarsýn
Trú og heift: Keppinautar í öldungadeild Texas með ólíka framtíðarsýn Kosn­inga­bar­áttan fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber er orðin jafn­ari en...
Jarð­skjálftinn 5,2 að stærð - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Jarð­skjálftinn 5,2 að stærð - Vísir
Þetta kemur fram í athugasemd jarðfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Síðast urðu skjálftar af þessari stærðargráðu þann 5. október og 28. júlí. Nokkrir ...
Mannskæð drónaárás nærri markaði
📅 19.10.2026 👁️ 4
Mannskæð drónaárás nærri markaði
Að minnsta kosti 80 voru drepnir í drónaárás í suðurhluta Súdan í gær. Árásin var við samgöngumiðstöð nærri markaði í Al-Dibab í Vestur-Kordofan, en þ...
Gianni Infantino: Uefa gives Fifa deadline to release key documents
📅 19.10.2026 👁️ 4
Gianni Infantino: Uefa gives Fifa deadline to release key documents
European governing body Uefa tells Fifa it must release key documents related to its governance and decision-making by 2 November.
Heimsfrægur píanósnillingur leikur í Hörpu í kvöld – tónleikar sagðir hafa farið fram hjá íslenskum fjölmiðlum
📅 19.10.2026 👁️ 4
Heimsfrægur píanósnillingur leikur í Hörpu í kvöld – tónleikar sagðir hafa farið fram hjá íslenskum fjölmiðlum
Heimsfrægur píanósnillingur leikur í Hörpu í kvöld – tónleikar sagðir hafa farið fram hjá íslenskum fjölmiðlum Fréttin19. október 2026Erlent, Innlent,...
Saka Ingu um skæting og hel­beran dóna­skap - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Saka Ingu um skæting og hel­beran dóna­skap - Vísir
Sigurjón virtist þar vera að vísa til þess að stjórnarandstaðan hefði gert sig bera af ofurviðkvæmni í hinu pólitíska argaþrasi þar sem menn hafa eina...
Skjálfti 5,2 að stærð í Bárðarbungu
📅 19.10.2026 👁️ 4
Skjálfti 5,2 að stærð í Bárðarbungu
Skjálfti af stærðinni 5,2 varð í Bárðarbungu klukkan korter í þrjú. Nokkrir eftirskjálftar hafa fylgt, flestir minni en 2 að stærð. Nokkrir skjálftar ...
Frá viðarkurli til vítissóda – loftslagið og rétttrúnaðurinn
📅 19.10.2026 👁️ 4
Frá viðarkurli til vítissóda – loftslagið og rétttrúnaðurinn
Frá viðarkurli til vítissóda – loftslagið og rétttrúnaðurinn Fréttin19. október 2026Aðsend grein, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsso...
Er gervigreindin okkar eina vopn gegn einokun RÚV?
📅 19.10.2026 👁️ 4
Er gervigreindin okkar eina vopn gegn einokun RÚV?
Er gervigreindin okkar eina vopn gegn einokun RÚV? Fréttin19. október 2026Aðsend grein, Gervigreind, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skri...
Ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á English Pub
📅 19.10.2026 👁️ 4
Ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás á English Pub
Héraðssaksóknari hefur ákært erlendan mann á fertugsaldri fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás fimmtudaginn 14. mars árið 2024, á veitingastaðnum En...
Ráðherra í stjórnarandstöðu
📅 19.10.2026 👁️ 4
Ráðherra í stjórnarandstöðu
Ráðherra í stjórnarandstöðu Fréttin19. október 2026Innlent, Páll Vilhjálmsson, StjórnmálLeave a Comment Páll Vilhjálmsson skrifar: Þorgerður Katrín ut...
Lögregla stýrði umferð til að liðka fyrir sjúkraflutningum
📅 19.10.2026 👁️ 4
Lögregla stýrði umferð til að liðka fyrir sjúkraflutningum
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stýrði umferð vegna bráðra sjúkraflutninga af Suðurlandi. Þetta staðfestir Árni Friðleifsson aðstoðaryfirlögregluþjónn....
Kraumar enn í Wolt-sendlum - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Kraumar enn í Wolt-sendlum - Vísir
Fyrir rúmum mánuði lögðu sendlar hjá Wolt tímabundið niður störf, mótmæltu við skrifstofur fyrirtækisins og vísuðu til þess að laun þeirra hefðu verið...
Skólar rýmdir eftir sprengjuhótanir íslamista á Norður-Írlandi – Allt að 300 skólar fengu hótun
📅 19.10.2026 👁️ 3
Skólar rýmdir eftir sprengjuhótanir íslamista á Norður-Írlandi – Allt að 300 skólar fengu hótun
Skólar á Norður-Írlandi voru rýmdir í morgun eftir að þeim bárust sprengjuhótanir í tölvupósti. Foreldrar voru beðnir að sækja börnin sín þegar í stað...
Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða - Vísir
Börnin voru sum bundin á meðan þau sveltu. Yfirvöld fundu rúmlega fjögur hundruð lík í grunnum gröfum í Shakahola-skógi. Þar leiddi Mackenzie fylgjend...
Sameinuðu þjóðirnar draga úr aðstoð á Gaza vegna fjárskorts
📅 19.10.2026 👁️ 4
Sameinuðu þjóðirnar draga úr aðstoð á Gaza vegna fjárskorts
Matvælahjálp Sameinuðu þjóðanna greindi frá því í morgun að hætta þurfi mánaðarlegum stuðningi við hálfa milljón íbúa á Gaza vegna fjárskorts. Shaun H...
Costanza á klakanum - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Costanza á klakanum - Vísir
Fréttastofa hefur eftir heimildum að Alexander hafi verið á ferðalagi um Suðurlandið og meðal annars kíkt á veitingastaðinn Smiðjuna í Vík í Mýrdal þa...
Engu við að bæta um uppsögn Harðar
📅 19.10.2026 👁️ 4
Engu við að bæta um uppsögn Harðar
Fjármála- og efnahagsráðherra segir að uppsögn Harðar Arnarsonar forstjóra Landsvirkjunar hafi verið almenns eðlis um áherslur í stjórnunum. Hann sagð...
Australian MP critically injured after being hit by car in apparent attack
📅 19.10.2026 👁️ 4
Australian MP critically injured after being hit by car in apparent attack
The independent politician is in hospital after what the prime minister says may have been a deliberate attack.
Þúsundir hvetja til út­tektar og ríkis­sak­sóknari í­hugar á­frýjun - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Þúsundir hvetja til út­tektar og ríkis­sak­sóknari í­hugar á­frýjun - Vísir
Maður sem sýknaður var af nauðgun í Landsrétti í síðustu viku hafði áður verið dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur. Konan í málinu hla...
Hávarður tók eigið líf – Móðir hans lýsir síðustu dögunum í lífi hans
📅 19.10.2026 👁️ 4
Hávarður tók eigið líf – Móðir hans lýsir síðustu dögunum í lífi hans
Hilma Dögg er þriggja barna móðir sem ólst upp að mestu fyrir norðan. Hún er móðir Hávarðar Mána sem lést fyrir rúmu ári síðan eftir mikla baráttu. Ha...
Björgvin vill viðurkenningu á því að brotið hafi verið gegn honum – „Ég var barinn og laminn þar“
📅 19.10.2026 👁️ 4
Björgvin vill viðurkenningu á því að brotið hafi verið gegn honum – „Ég var barinn og laminn þar“
Björgvin Kristbergsson, meðstjórnandi í Átaki, félagi fólks með þroskahömlun, birti áhrifamikla grein í Morgunblaðinu í dag. Björgvin, sem er á sjötug...
„Það eru alltaf stóru flokkarnir sem tala fyrir fækkun kjörinna fulltrúa“
📅 19.10.2026 👁️ 4
„Það eru alltaf stóru flokkarnir sem tala fyrir fækkun kjörinna fulltrúa“
Gunnar Axel Axelsson, fyrrverandi bæjarstjóri Voga, gefur lítið fyrir orð Hildar Björnsdóttur borgarstjóra um að fækka ætti borgarfulltrúum. Málið sé ...
Sjáðu samninginn sem Viðreisn gerði við Jón Gnarr
📅 19.10.2026 👁️ 4
Sjáðu samninginn sem Viðreisn gerði við Jón Gnarr
Jón Gnarr á að styðja fjárlög, fjáraukalög og önnur stefnumótandi stjórnarfrumvörp sem kveðið er á um í stjórnarsáttmála, á móti fær Jón sérfræðiaðsto...
Tafir á af­hendingu á bólu­efni við in­flúensu - Vísir
📅 19.10.2026 👁️ 4
Tafir á af­hendingu á bólu­efni við in­flúensu - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynninu frá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Þar segir að áformað hafi verið að hefja bólusetningar fólks í forgangshópum 20. o...