Ójöfnuður birtist helst í eignamyndun
Þingmenn vilja skoða jöfnuð og félagslegan hreyfanleika hér á landi frá aldamótum. Flutningsmaður tillögunnar, Dagur B. Eggertsson segir ójöfnuð ekki aðeins hafa áhrif á tækifæri fólks heldur einnig heilsu.
Nú í mars lagði hópur þingmanna Samfylkingarinnar fram beiðni um skýrslu frá forsætisráðherra um ójöfnuð, félagslegt landslag og félagslegan hreyfanleika á Íslandi síðastliðin 25 ár. Flutningsmaður var Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri.
Í greinargerð með beiðninni er vísað til vaxandi umræðu um þróun ójafnaðar, félagslegrar aðgreiningar og búsetumynsturs á Íslandi. „Nýleg úttekt á félagslegu landslagi Reykjavíkur sem náði einnig til suðvesturhornsins bregður ljósi á ójöfnuð í tekjum og eignum og þróun mikilvægra þátta,“ segir meðal annars.
Heimildin náði tali af Dagi á göngu um borgina. „Þegar verið er að tala um aukinn ójöfnuð þá finnur þú hann ekki í tekjutölum í Reykjavík eftir hrun, en þú sérð það frekar á eignahliðinni. Við þurfum að fylgjast með þessu svo hægt sé að taka betri og markvissari ákvarðanir,“ sagði hann meðal annars.
Þörf sé á að kortleggja stöðuna betur. „Við höfum ekki góða innsýn inn í þessa þætti, því það er rétt …