Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í vikunni mann í skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á vagnstjóra, þar sem hann bæði kýldi hann ítrekað og potaði í augu hans. Að því tilefni heyrði fréttastofa í Pétri.
„Það hefur töluvert verið kvartað undan því, já, yfir ógnvænlegri hegðun. Það er ekki beint verið að ráðast á með höndum daglega, en þetta ógnvænlega atferli, það er í gangi alla daga,“ segir Pétur.
Útaf þessu, er viðhorfið til starfsins að breytast innan stéttarinnar?
„Já, svona frekar. Fólk telur sig ekki nógu öruggt í þessu,“ segir Pétur, en tekur þó fram að flestum líki vel við starfið fyrir utan þennan tiltekna þátt.
Greint var frá því í fyrra að Strætó hafi varið fjórum milljónum króna mánaðarlega í öryggisgæslu í Mjódd síðasta vor. En hætt var með þá gæslu í júní í fyrra. Jafnframt hafi lögreglan vaktað svæðið.
Pétur segir að síðastliðin tvö ár hafi verið rætt um að hafa öryggisgæslu í vögnum eða á stöðvum, líkt og í Mjóddinni, sem sé líklega fjölfarnasta stoppistöðin.
„Það væri kannski full þörf á því, en það er kannski bara mín skoðun.“
Í gær var greint frá því að leigubílstjóri hafi verið stunginn af farþega í Reykjavík á mánudagskvöld, að því er virðist í tilviljanakenndri árás.
Eigið þið atvinnubílstjórar undir högg að sækja um þessar mundir?
„Miðað við, þá myndi ég telja það, já. Það er orðin raunin í þessum bransa.“