Ó­gleyman­legt galdrabrúðkaup á tásunum - Vísir

Ó­gleyman­legt galdrabrúðkaup á tásunum - Vísir

Ó­gleyman­legt galdrabrúðkaup á tásunum - Vísir

Kristín Þórsdóttir ber marga hatta. Hún starfar sem kynlífs- og sambandsmarkþjálfi, er hún fyrirlesari og hefur unnið mikið fyrir Ljósið, starfar í Sorgarmiðstöð sem hópastjóri og heldur erindið Fyrstu skref í sorg. Hún starfar sömuleiðis sem cranio meðferðaraðili og shamanískur heilari ásamt því að halda ýmsa viðburði og námskeið. 

Kristinn Lárusson er húsasmíðameistari, byggingariðnfræðingur, rekstrariðnfræðingur og starfar sem verkefnisstjóri hjá Klettás.

Hjúin eru búin að vera saman í tæp sjö ár en Kristinn fór svo á skeljarnar fyrir rúmu ári í fallegri fjöru á Mýrunum. Blaðamaður ræddi við Kristínu um stóra daginn.

Hvað voruð þið búin að vera lengi að skipuleggja stóra daginn?

Við byrjuðum síðasta haust að ákveða stað og stund og svo höfum við verið að skipuleggja þetta smám saman. Draumurinn var alltaf að halda lítið sætt sveitabrúðkaup. 

Uppáhalds staðurinn okkar er á Mýrunum og því kom ekki annað til greina en að gifta okkur í krúttlegustu kirkju landsins, Álftaneskirkju á Mýrum.

Hjónin giftu sig í Álftaneskirkju á Mýrunum.Íris Ösp Sveinbjörnsdóttir/Moonfire

Hvernig var brúðkaupsdagurinn?

Við eigum varla til nógu stórt orð til þess að lýsa honum. Töfrandi er ef til vill rétta orðið. Við tókum félagsheimilið Lyngbrekku á leigu yfir alla helgina. Ótrúlega fallegur salur og algjörlega í okkar anda. Það gátu allir sem vildu tjaldað þar fyrir utan og margir komu kvöldinu áður og hjálpuðu okkur við undirbúninginn sem að var ómetanlegt.

Það hafði rignt ansi hressilega alla nóttina á undan og um morguninn og svo fyrir einhverja töfra stytti upp og veðrið var dásamlegt.

Ég hefði betur sleppt því að gráta úr mér augun um morguninn yfir því að við gætum ekki haldið athöfn úti. Ég held að margar brúðir kannist við það að maður þarf aðeins að losa um tárin svona rétt fyrir.

Það var ómetanlegt að hafa allt okkar nánasta fólk til að aðstoða okkur í kringum allt ferlið. Ragnhildur Bergþórsdóttir vinkona mín sá um að greiða mér og Rún Knútsdóttir svilkona mín farðaði mig með góðri hjálp dóttur sinnar hennar Þórhildar.

Við erum svo lánsöm að eiga stóran barnahóp, en við eigum sex börn, þrjár tengdadætur og eitt barnabarn sem er væntanlegt núna í júlí. Þau tóku öll mikinn þátt í deginum með okkur. Stóru strákarnir okkar voru svaramenn og hin börnin okkar voru brúðarsveinar og brúðarmey.

Við erum svo heppin að eiga stórkostlega vini sem sungu og spiluðu í athöfninni okkar í kirkjunni. Lára Rúnars og Aldís Fjóla Borgfjörð Ásgeirsdóttir sungu og Arnar Gíslason og Halldór Sveinsson spiluðu undir.

Séra Vigfús Bjarni Albertsson gaf okkur saman. Ég er búin að þekkja Vigfús í bráðum ellefu ár og hann hefur fylgt mér í gegnum ýmislegt í lífinu þannig að það koma aldrei neitt annað til greina en að hann myndi gefa okkur saman. Athöfnin varð ótrúlega persónuleg og falleg.

Við Kiddi vorum búin að ákveða að skrifa heiti til hvort annars sem að gerði stundina miklu persónulegri. Eftir kirkjuna röltum við öll að stórkostlegum stað þar sem að besta vinkona mín, Lára Rúnars, hélt utan um galdraathöfn. 

Þar vorum við á tásunum úti í náttúrunni eins og okkur hafði dreymt um og gefin saman fyrir landi og vættum.

Svo falleg stund og gaman að sjá hvað fólkið okkar var opið fyrir þessu og tóku þátt. Það var eins og tíminn stæði í stað.

Galdraathöfnin var ógleymanleg.Íris Ösp Sveinbjörnsdóttir/Moonfire

Svo fórum við í dásamlega myndatöku og það sést svo vel á myndunum hvað við vorum í skýjunum með þetta allt. Íris Ösp Sveinbjörnsdóttir vinkona okkar og eigandi Moonfire tók myndirnar, við vorum svo slök í kringum hana að við gleymdum að það væri verið að taka myndir af okkur sem að er galdurinn á bak við svona myndatöku.

Þegar að við mættum svo aftur í Lyngbrekku tók allur hópurinn okkar fagnandi á móti okkur og við tók borðhald, endalaust fallegar ræður frá börnum okkar og fjölskyldu. Ég held ég hafi sjaldan séð fullan sal tárast eins mikið.

Við vorum búin að biðja Daníel Kára, son okkar um að spila undir fyrsta dansinum á gítar. Hann gerði það svo ótrúlega vel með góðri hjálp hjónanna og vina okkar Láru og Arnars. Stórkostleg stund. Svo var partý fram á nótt og ég held að ég sé ekki að fara með fleipur en ég hef sjaldan séð bræður mína dansa eins mikið. 

Ormurinn var tekinn og allt saman.
Brúðhjónin dönsuðu í myndatökunni og langt fram á nótt í veislunni.Íris Ösp Sveinbjörnsdóttir/Moonfire

Voruð þið með einhverja viðburði dagana í kringum brúðkaupið?

Nei, ekki þannig. Margir voru þó mættir kvöldinu áður og tjölduðu og Boggi, fósturbróðir Kidda, sá um að veiða Skötusel sem var grillaður kvöldið eftir að það var búið að græja allan salinn og gera hann fallegan. Þetta var yndisleg útilegustemmning.

Hjónin dreymdi um sveitabrúðkaup og draumurinn rættist.Íris Ösp Sveinbjörnsdóttir/Moonfire

Voruð þið sammála í skipulaginu?

Já, við vorum með svipaða sýn á það hvernig við vildum hafa hlutina þó svo að ég hafi séð mest fyrir mér allt varðandi skreytingarnar. Kiddi sá mest um að plana matinn enda erum við heldur betur með hæg heimatök en Maggi bróðir hans Kidda kom sterkur inn. Hann sá um forréttinn og bauð upp á villibráð sem að hann hafði veitt sjálfur.

Konan hans Lovísa og mamma mín voru búnar að baka gúmmelaði. Besta ákvörðun sem ég tók var að panta brúðarkökuna, það minnkaði allt stress. Ég talaði við Evu sem á Sætar Syndir og hún gerði alveg stórkostlega franska súkkulaðiköku með þristakremi sem sló heldur betur í gegn.

Hjónin voru umkringd þeirra besta fólki.Íris Ösp Sveinbjörnsdóttir/Moonfire

Hvað fannst ykkur mikilvægast í skipulaginu?

Kiddi sagði við mig þegar ég varð of stressuð og var farin að ofhugsa að það eina sem að hann vildi væri að við myndum njóta undirbúningsins sem að við náðum að gera nokkuð vel.

Svo vorum við svo lánsöm með fólkið okkar og allir voru boðnir og búnir til að aðstoða. Það gagnaðist mér svo mest að skrifa niður dagana viku fyrir brúðkaup og lista niður hvað þyrfti að gerast á hverjum degi. Þá hafði maður betri yfirsýn.

Kristín var vel undirbúin og gat slakað á á brúðkaupsdaginn.Íris Ösp Sveinbjörnsdóttir/Moonfire

Hvaðan sóttuð þið innblástur?

Pinterest hjálpaði helling. Svo vorum við svo heppin að fá lánað skraut úr brúðkaupinu hennar Kötlu vinkonu sem á Systur og makar og frá Svövu vinkonu sem er með Listræn ráðgjöf. Það heldur betur setti svip sinn á lokaútkomuna.

Hvað stendur upp úr?

Allur dagurinn var stórkostlegur en það sem stendur upp úr er tilfinningin sem að allir fundu fyrir þennan dag, þessi mikla ást og töfrar sem voru í loftinu og sjá gleðina í öllu fólkinu okkar.

Þetta var einn stór gleðidagur.Íris Ösp Sveinbjörnsdóttir/Moonfire

Sáu einhverjir um veislustjórn og voru skemmtiatriði?

Já við vorum svo heppin að Hulda frænka okkar allra var til í að taka þetta að sér og gerði það svona listilega vel. Við ætluðum fyrst ekki að hafa neinn þar sem að við vorum ekki það mörg en við sjáum svo sannarlega ekki eftir því. Ég veit ekki hvað við hefðum gert án Huldu.

Öll fjölskyldan lagði hönd á plóg í undirbúningi og á stóra deginum.Íris Ösp Sveinbjörnsdóttir/Moonfire

Var eitthvað sem kom ykkur á óvart?

Kiddi kom mér reyndar á óvart og var búinn að tala við vini okkar sem að voru að spila í athöfninni og bætti við einu yndislegu lagi, Söngur kríunnar. Það sem kom mér hvað mest á óvart var hversu innilega við náðum að slaka á og njóta. 

Maður gleymdi sér í tímaleysi og kærleika. Allar ræðurnar komu okkur sömuleiðis vel á óvart, við vorum algjörlega orðlaus.

Kiddi kom Kristínu fallega á óvart í athöfninni.Íris Ösp Sveinbjörnsdóttir/Moonfire

Hvað voru margir gestir?

Við ákváðum í upphafi að hafa lítið brúðkaup með okkar allra nánasta fólki og vinum. Ég viðurkenni að það var mjög erfitt að vera ekki að bjóða í risa veislu en lokaniðurstaða var 42. Við sjáum svo sannarlega ekki eftir því þar sem að það myndaðist svo náin og góð stemning.

Fyrsti dansinn var einstaklega einlægur og fallegur.Íris Ösp Sveinbjörnsdóttir/Moonfire

Hvernig gekk að velja brúðkaupsfötin og hvaðan sóttirðu innblásturinn fyrir það?

Það kom ekki annað til greina fyrir Kidda en að fara í Kölska og láta sauma á hann föt. Hann á ein jakkaföt þaðan og þau eru ótrúlega vönduð og flott. Hann vildi hafa þetta smá casual þannig að hann var ekki í jakka heldur mjög töff vesti sem hentaði vel fyrir sveitabrúðkaup.

Ég hafði í nokkur ár verið að fylgja BloombyEyrún á Instagram og alltaf dreymt um að eignast kjól eftir Eyrúnu. Ég mætti svo í mátun og varð heilluð, hún er svo yndisleg manneskja og mér leið eins og við hefðum þekkst alla tíð þrátt fyrir að ég hafði verið að hitta hana í fyrsta sinn.

Þegar ég mætti í annað sinn komu helling af konum í mínu lífi með mér og þær voru allar sammála um að hver kjóllinn væri fallegri á eftir öðrum. Ég mátaði nokkra en allt í einu segir Eyrún: Viltu ekki bara að ég hanni einhvern einstakan kjól á þig? Ég varð alveg orðlaus. Hún teiknaði upp skissu og þarna var draumakjóllinn minn á blaði, nákvæmlega eins og mig langaði í.

Draumurinn var að vera í gamaldags blúndu en það endaði með því að Eyrún kom með tvo ótrúlega fallega gamla dúka og þá vissum við báðar strax að þetta yrði fullkomið. Mér hefur aldrei liðið eins vel eins og í þessum kjól. Allt ferlið var svo dásamlegt og maður fann alla góðu fallegu orkuna sem að Eyrún setti í þennan einstaka kjól.

Töfrandi brúðarkjóll.Íris Ösp Sveinbjörnsdóttir/Moonfire

Til að fullkomna allt saman bað ég Bjarma sem á Hæ blóm að gera aðeins öðruvísi brúðarvönd og hálfan brúðarkrans. Vildi hafa hafarna fjaðrir sem vinkona mín gaf mér fyrir fáum árum með í vendinum og utan um hann voru fallegir borðar sem að langömmur mínar höfðu saumað og næla sem að amma Kidda hafði átt. Þetta varð að stórkostlegum töfravendi sem að fullkomnaði allt saman.

Það var svo ótrúlegt gefandi að hafa fólk með sér í þessu, Eyrúnu og Bjarma, sem vissu einhvern veginn nákvæmlega hvernig ég vildi hafa hlutina. Það er svo dýrmætt.

Bjarmi hjá HæBlóm gerði þennan fallega vönd.Íris Ösp Sveinbjörnsdóttir/Moonfire

Ertu með eitthvað gullið ráð fyrir verðandi hjón sem eru að skipuleggja brúðkaup?

Ég mæli með að hafa mjög færan ljósmyndara, eins og við vorum með, til þess að fanga öll augnablikin og daginn.

Ætli það sé ekki líka fyrst og fremst þetta sem við gerðum, að njóta undirbúningsins og ekki gleyma afhverju þið eruð að þessu. Sömuleiðis að leyfa fólkinu manns að taka þátt í öllu saman. Það gerir allt miklu persónulegra og fallegra.

Einnig vorum við með borð þar sem að fólk gat sest við, skrifað skemmtilega minningu, bréf eða heilræði til okkar og setja í minningarbox. Það var ótrúlega notalegt að sitja svo saman kvöldið eftir að við vorum komin heim og lesa allar þessar fallegu kveðjur. Það er dýrmætt að eiga góðar minningar.

Hjörtu hjónanna eru stútfull af fallegum minningum frá brúðkaupinu.Íris Ösp Sveinbjörnsdóttir/Moonfire

Hvernig er tilfinningin að lenda eftir svona veislu?

Við vitum það ekki alveg, erum ekki almennilega lent. Við erum ennþá svífandi um á einhverju bleiku skýi. Svo erum við ótrúlega spennt að skella okkur í brúðkaupsferð út í buskann og njóta íslenskrar náttúru. Ætli við lendum nokkuð fyrr en eftir það.

#galdrabrúðkaup #tásunum #vísir #ógleymanlegt


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262906644d/o-gleyman-legt-galdrabrudkaup-a-tasunum

📰 Aðrar fréttir

Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
📅 11.10.2026 👁️ 2
Að­dá­endur í­trekað farið yfir mörk - Vísir
„Það var ömurlegt. Það er svo mikið stress að starta svona túrum. Maður er bara á fullu og maður er ekki búinn að spila í langan tíma og það er allt a...
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
📅 11.10.2026 👁️ 2
Vonast til að geta leyst ráðgátuna um Ameliu Earhart
Vísindafólk frá bandarískri stofnun um fornleifaarfleið, Archaeological Legacy Institute, og Purdue-háskóla kemur til Nikumaroro-eyju í Kyrrahafi á má...
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
📅 11.10.2026 👁️ 2
Fjölskylduharmleikur í Pennsylvaníu
Maður á fimmtugsaldri skaut sjö ættingja sína og fjölskylduvin á heimili í borginni Erie í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum í gær, áður en hann tók sitt e...
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
📅 11.10.2026 👁️ 3
Justice Department investigating television networks over Trump pool coverage
The White House had blocked access for CNN, MS Now and Politico, leading them to restrict pool coverage.
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
📅 11.10.2026 👁️ 3
UK launch flood taskforce to prepare for extreme winter weather
The Environment Agency has warned approximately 6.3 million homes and businesses in England remain at risk of flooding.
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
📅 11.10.2026 👁️ 3
Heimila losun á fjórum milljónum tunna af hráolíu vegna fellibylsins Isaias
Fellibylurinn Isaias sem skall að landi við Flórída og Alabama í gær hefur raskað olíuframleiðslu Bandaríkjanna við strendur Mexíkóflóa.Orkumálaráðher...
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Hútar sagðir á­byrgir fyrir á­rás á flug­völl - Vísir
Samkvæmt umfjöllun Reuters særðust 309 manns og voru sumir þeirra fluttir á sjúkrahús í lífshættu. Árásin hafi verið gerð fyrirvaralaust og er þetta s...
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Þúsundir mótmælenda sagðir hafa verið handteknir
Þúsundir mótmælenda voru handteknir í Nýju-Delí, höfuðborg Indlands, í dag þegar mótmælt var breytingum á kjörskrá landsins. Þetta kemur fram í tilkyn...
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
📅 10.10.2026 👁️ 4
Blackpink’s Lisa Manobal: How the K-pop star faced a race scandal
Film-maker Sue Kim talks about having unprecedented access to K-Pop idol Lisa Manobal at her most candid.
AI is creating a 'human premium' for art created by people
📅 10.10.2026 👁️ 4
AI is creating a 'human premium' for art created by people
Amid a surge in AI content, many are placing extra value on art that's obviously made by a human. But can that last, asks Ros Atkins
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
📅 10.10.2026 👁️ 4
Plan 2: Three friends on a decade of student loans
Lizzy, Charlotte and Libby studied at the same time, but their student debt now looks very different.
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
📅 10.10.2026 👁️ 4
MPs attempt to overturn ruling which protects police from being sued
MPs are seeking to stop immunity applying when police fabricate evidence or are dishonest or negligent.
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
📅 10.10.2026 👁️ 5
Fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias
Að minnsta kosti fjórir fórust af völdum fellibyljarins Isaias sem skall á strönd Flórída og Alabama í gærkvöld.Dregið hefur úr krafti Isaias en enn e...
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Bratta­hlíð Ei­ríks rauða - Vísir
Í fréttum af fornleifafundinum í síðustu viku kom fram að menn hafi lengi grunað að þarna væri kirkjurúst frá tímum norrænu byggðarinnar. Sönnunin vær...
Tóku samtalið um land allt
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tóku samtalið um land allt
„Samtalið“ svokallaða fór fram í dag, þar sem fólk hittist, ræddi framtíðina og hvernig samfélag það vill. Verkefnið heitir „Tölum saman“ og varð til ...
Út­skrifuð af sjúkra­húsi og send aftur í fangelsið - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Út­skrifuð af sjúkra­húsi og send aftur í fangelsið - Vísir
Hin fimmtuga Pike lifði af tvær banvænar sprautur sem hún fékk á miðvikudaginn í síðustu viku í Tennessee í Bandaríkjunum. Hún komst aftur til meðvitu...
Tveir látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Tveir látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
Að minnsta kosti tveir eru látnir eftir árás á King Khalid-alþjóðaflugvöllinn í Ríad í Sádi-Arabíu í dag. Frá þessu greinir AFP-fréttastofan og hefur ...
Tólf látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tólf látnir eftir árás á alþjóðaflugvöll í Sádi-Arabíu
Að minnsta kosti tólf manns eru látnir og 309 særðir eftir árás á King Khalid-alþjóðaflugvöllinn í Ríad í Sádi-Arabíu í dag, að sögn flugmálayfirvalda...
Kalla eftir að­gerðum ekki yfir­lýsingum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Kalla eftir að­gerðum ekki yfir­lýsingum - Vísir
„Íslensk stjórnvöld voru nýlega meðal 12 ríkja sem sendu frá sér yfirlýsingu um fyrirhugaðar aðgerðir gegn viðskiptum með vörur frá ólöglegum landtöku...
Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Vill auka að­gengi að verkja­lyfjum - Vísir
Nú fást lausasölulyf að jafnaði í apótekum. Lyfjastofnun getur þó leyft verslunum að selja ákveðin lyf ef meira en tuttugu kílómetrar eru í næsta apót...
Northern Lights: Aurora stun UK down to England's south coast
📅 10.10.2026 👁️ 4
Northern Lights: Aurora stun UK down to England's south coast
The natural phenomenon, known as the Aurora Borealis, is the result of increased solar activity.
Tvær milljónir manna í landfræðilegu búri
📅 10.10.2026 👁️ 4
Tvær milljónir manna í landfræðilegu búri
Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri Unicef á Íslandi, segir líflína fólks á Gaza að fólk muni eftir þeim, fjármagni hjálp sem það þurfi og ýti á st...
Vill nýjan Úkraínuforseta - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Vill nýjan Úkraínuforseta - Vísir
Í gær greindi Trump frá samkomulagi sínu við Vladímír Pútín Rússlandsforseta um að Rússar hefji þegar í stað útflutning á hundruðum þúsunda tonna af d...
„Ég sé ekki að ís­lenskt sam­félag vilji kasta því fyrir róða“ - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
„Ég sé ekki að ís­lenskt sam­félag vilji kasta því fyrir róða“ - Vísir
Kennarasamband Íslands boðaði til blaðamannafundar í vikunni þar sem sambandið kynnti stefnumótun og áherslur í menntamálum. Kallaði sambandið eftir s...
Mestu skiptir að engan sakaði
📅 10.10.2026 👁️ 4
Mestu skiptir að engan sakaði
Innan við tvær klukkustundir tók að slökkva eldinn í álverinu í dag og var kerskáli tekinn úr rekstri á meðan.„Það er ekki vitað að svo stöddu hvað ol...
Frá dísilsamningi við Pútín til ákalls Trumps um nýjan forseta Úkraínu
📅 10.10.2026 👁️ 4
Frá dísilsamningi við Pútín til ákalls Trumps um nýjan forseta Úkraínu
Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði við fréttamenn fyrir utan Hvíta húsið í dag að hann teldi kominn tíma til að Úkraína fengi nýjan forseta. Hann la...
K-kúrfu hagkerfið
📅 10.10.2026 👁️ 4
K-kúrfu hagkerfið
K-kúrfu hagkerfið Verð­bólga var ekki til­kom­in vegna launa og eyðslu neðri hluta K-leggs­ins í hag­kerf­inu, held­ur vegna að­gerða at­vinnu­lífs­in...
Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Lést eftir á­rás tígris­dýrs í dýra­garði - Vísir
Lögreglunni barst tilkynning um að maðurinn hefði farið inn á girt svæði klukkan hálf tvö að staðartíma í dag. Í kjölfarið hafi tígrisdýrið ráðist á m...
Erum að horfa á vendipunkt í verðbólgunni
📅 10.10.2026 👁️ 4
Erum að horfa á vendipunkt í verðbólgunni
Hvert einasta sæti var skipað og rúmlega það á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar í dag. Ræða formannsins og forsætisráðherrans bar heitið Styrk hö...
Four dead and thousands without power after Hurricane Isaias lashes US
📅 10.10.2026 👁️ 5
Four dead and thousands without power after Hurricane Isaias lashes US
Roofs were ripped off buildings after Isaias barrelled into the US on Friday evening, before it weakened to a post-tropical cyclone.
Karlmaður lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði
📅 10.10.2026 👁️ 5
Karlmaður lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði
Karlmaður er látinn eftir árás tígrisdýrs í dýragarði skammt frá borginni Doncaster í Jórvíkurskíri á Englandi. Lögregla segir manninn hafa farið inn ...
Vilja bíla­stæðin upp úr skot­gröfunum - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Vilja bíla­stæðin upp úr skot­gröfunum - Vísir
Meðal bílastæðanna fimmtán sem verða tekin aftur í notkun eru tvö við Kaffi Babalú á Skólavörðustíg þar sem fréttamaður hitti þær Guðnýju Maríu Jóhann...
Níu létust eftir skot­á­rás - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Níu létust eftir skot­á­rás - Vísir
Lögregla var komin á vettvang aðeins örfáum mínútum eftir að tilkynning barst henni um skothvelli úr íbúðarhúsi. Allir níu voru þegar látnir þegar lög...
Smári og Linda muna vel eftir opnun Smáralindar
📅 10.10.2026 👁️ 5
Smári og Linda muna vel eftir opnun Smáralindar
Verslunarmiðstöðin Smáralind var opnuð á þessum degi fyrir 25 árum. Smári úr Smáraskóla og Linda úr Lindaskóla fengu þann heiður að opna þessa stærstu...
Expedition hopes to find aviator Amelia Earhart's plane on remote island
📅 10.10.2026 👁️ 5
Expedition hopes to find aviator Amelia Earhart's plane on remote island
The team en route to the suspected crash site aim finally to solve the mystery of her 1937 disappearance.
Á annað hundrað sektaðir - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Á annað hundrað sektaðir - Vísir
Um helgina fer fram sýningin Íslenskur landbúnaður 2026 í Laugardalshöll en fagsýningarfyrirtækið Ritsýn stendur fyrir sýningunni. Hátt í hundrað sýne...
New selfie spot in Corralejo made from 100% recycled plastic
📅 10.10.2026 👁️ 5
New selfie spot in Corralejo made from 100% recycled plastic
Visitors to Corralejo have a new place to capture their holiday photographs following the installation of a tourist selfie spot made entirely from rec...
Trump vill að Úkraína skipti um forseta
📅 10.10.2026 👁️ 5
Trump vill að Úkraína skipti um forseta
Donald Trump Bandaríkjaforseti vill að Úkraínumenn velji sér annan forseta sem geti bundið enda á stríð landsins við Rússland.Hann er Volodomyr Zelens...
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
📅 10.10.2026 👁️ 4
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“ For­sæt­is­ráð­herra seg­ir að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­un...
Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
📅 10.10.2026 👁️ 5
Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“
Kristrún Frostadóttir: Þrátt fyrir nei „lokum við að sjálfsögðu ekki á Evrópu“ For­sæt­is­ráð­herra seg­ir að nið­ur­staða þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­un...
Þrír réðust á einn - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 4
Þrír réðust á einn - Vísir
Er þetta meðal þeirra mála sem skráð eru í kerfi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því í dag. Líkamsárásin átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar ...
'Time for Ukraine to get new president,' says Trump after Zelensky condemns diesel deal
📅 10.10.2026 👁️ 4
'Time for Ukraine to get new president,' says Trump after Zelensky condemns diesel deal
Ukraine's leader had said the deal with Russia to release diesel into the US would help Moscow fund the war.
Kirkjugestir mæta í þjóðbúningum
📅 10.10.2026 👁️ 4
Kirkjugestir mæta í þjóðbúningum
Nokkrar þjóðbúningamessur hafa verið haldnar í sunnlenskum kirkjum síðustu ár og hafa þær heppnast einstaklega vel og margir mætt í þjóðbúningum. Pres...
Aftur í fangelsi eftir misheppnaða aftöku
📅 10.10.2026 👁️ 4
Aftur í fangelsi eftir misheppnaða aftöku
Christa Pike, 50 ára bandarísk kona sem lifði af tvær aftökutilraunir með banvænni sprautu í Tennessee-ríki í Bandaríkjunum, hefur verið útskrifuð af ...
Man dies after tiger attack at Yorkshire Wildlife Park
📅 10.10.2026 👁️ 4
Man dies after tiger attack at Yorkshire Wildlife Park
The visitor attraction near Doncaster was evacuated on Saturday and remains closed for the weekend.
Aníta Briem á von á þriðja barninu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Aníta Briem á von á þriðja barninu
Leikkonan Aníta Briem og Hafþór Waldorff, eiga von á sínu öðru barni saman. Fyrir eiga þau dótturina Lúnu, sem fæddist í nóvember 2024. Parið gekk í g...
Á­kvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað - Vísir
📅 10.10.2026 👁️ 5
Á­kvað strax að hann ætlaði ekki að fela stómað - Vísir
„Ég eyddi öllu sumrinu á spítala því ég lenti í því að fá ristilpoka sem sprakk og gerði gat á ristilinn á mér, með tilheyrandi sýkingum og veseni. Ég...
Forsetaframbjóðandi hafnar því að vera handvalinn af Höllu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Forsetaframbjóðandi hafnar því að vera handvalinn af Höllu
Frambjóðendur til forseta Alþýðusambands Íslands hafna því að þeir séu fulltrúar ólíkra fylkinga innan sambandsins.Arnaldur Grétarsson, sérfræðingur í...
Gengu kröfugöngu niður Laugaveg í tilefni alþjóðlegs aðgerðadags fyrir Palestínu
📅 10.10.2026 👁️ 5
Gengu kröfugöngu niður Laugaveg í tilefni alþjóðlegs aðgerðadags fyrir Palestínu
Fjöldi fólks gekk kröfugöngu frá Hlemmi að Austurvelli í tilefni alþjóðlegs aðgerðadags fyrir Palestínu í dag, 10. október.Í tilkynningu Félagsins Ísl...
Milljónavirði af rauðvíni stolið úr vöruhúsi í Toskana
📅 10.10.2026 👁️ 5
Milljónavirði af rauðvíni stolið úr vöruhúsi í Toskana
Óprúttnir þjófar stálu eðalvínum sem talið er fimm milljóna evra, jafnvirði um 687 milljóna króna, virði úr stærsta vöruhúsi hinnar nafntoguðu Marches...