Í Reykjavík var lögregla kölluð til eftir að einstaklingur neitaði að borga fyrir far með leigubíl og hafði þar að auki valdið skemmdum á bifreiðinni. Málið var leyst á vettvangi. Kallað var eftir aðstoð lögreglu á sjúkrastofnun í Reykjavík þar sem tilkynnt var um að síma hefði verið stolið. Þá var tilkynnt um innbrot í verslun í vesturbæ Reykjavíkur. Málið er í rannsókn.Þá stöðvaði lögregla tvo á höfuðborgarsvæðinu grunaða um akstur undir áhrifum fíkniefna og tvo grunaða um akstur undir áhrifum áfengis. Loks var einn ökumaður sektaður fyrir að aka á 142 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 80 km/klst.
Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri - Vísir