Um tvær milljónir manna horfðu á stolna útgáfu af kvikmyndinni The Odyssey þegar henni var lekið á samfélagsmiðlinum X um helgina. Framleiðendur vilja að fólk horfi á myndina í kvikmyndahúsum.
Fram kemur í frétt Variety að færsla á X, þar sem finna mátti myndina í heild sinni í háum gæðum, hafi fengið 2,1 milljón áhorfa á tveimur og hálfri klukkustund á laugardag. Aðganginum sem birti myndina var síðan lokað.
Christopher Nolan leikstýrir myndinni sem er þrjár klukkustundir að lengd. Hún er tekin upp á IMAX-myndavélar en í þeim er 70 millímetra filma með háskerpuupptöku sem er sérstaklega ætluð fyrir stóra kvikmyndasali.
Telja lekann ekki hafa áhrif á miðasölu myndarinnar
Ódysseifskviða Nolan er sú fyrsta sem tekin er alfarið upp með IMAX-myndavélum. Það kom því mörgum notendum X í opna skjöldu þegar myndinni var lekið tímabundið um helgina.
„Einhver lak The Odyssey í háskerpu. Ég hélt þetta væri falsað en þetta er satt,“ skrifaði einn notandi á X.
„Öll Ódysseifskviða birt sem myndband inni í færslu á X. Brjálæði,“ skrifaði annar.
Annarri útgáfu af myndinni, í lakari gæðum, var birt á X á sunnudag. Hún var fjarlægð tveimur klukkustundum síðar en hafði þá fengið tæplega 50 þúsund áhorf.
Í yfirlýsingu kvikmyndafyrirtækisins Universal segir að fyrirtækið hafi hafist handa við að fjarlægja myndina um leið og það hafi orðið vart við lekann. Universal taki brotum á höfundarrétti alvarlega og hyggist grípa til allra mögulegra úrræða til að vernda efni sitt og hugverkaréttindi.
Kvikmyndasérfræðingar telja lekann ekki eiga eftir að hafa mikil áhrif á miðasölu myndarinnar sem notið hefur mikilla vinsælda frá því hún kom út. Heildartekjur myndarinnar nema nú 640 milljónum dollara eða um 78 milljörðum króna.