Þó að sagan um Ódysseif sé þrjú þúsund ára gömul er enn þrætt um túlkun hennar. Ný kvikmynd Christopher Nolan um Ódysseifskviðu hefur slegið í gegn og kveikt áhuga margra á sögunni á ný.
Skipbrot, eineygðir risar og tælandi dísir eru allt hluti af sögu Ódysseifs sem nú hefur fengið nýtt líf í kvikmynd leikstjórans Christophers Nolans, The Oddyssey, sem skartar skærustu stjörnum Hollywood um þessar mundir. Ódysseifskviða Nolans hefur verið í bígerð síðustu þrjú ár og vakið mikla athygli.
Túlkun Emily Wilson hafi farið fyrir brjóstið á mörgum
Nokkrar útgáfur eru til af Ódysseifskviðu. Sveinbjörn Egilsson þýddi hana á íslensku á 19. öld. Kvikmynd Nolands er byggð á útgáfu Emily Wilson frá árinu 2018. Eiríkur G. Kristjánsson, kennari við fornmáladeild Menntaskólans í Reykjavík, segir að þessi túlkun kvenna á verkinu hafi farið fyrir brjóstið á mörgum.
„Þetta verk hefur verið í sífelldri endurnýjun. Kannski ekki síðan það kom út en síðan það birtist og hver kynslóð hefur haft sína skoðun á því og mér finnst bara gott að við fáum okkar útgáfu, sama hvað fólki finnst um meðferð Nolans á sögunni.“
Rúmlega 8000 manns sáu The Odyssey um helgina
Kvikmynd Nolans var frumsýnd í kvikmyndahúsum hér á landi síðustu helgi og rúmlega 8000 manns sáu myndina um helgina.
Myndin hefur einnig vakið athygli fólks á bókinni en bóksali í Skáldu segir að fleiri eintök af Ódysseifskviðu hafi selst það sem af er ári en allt síðasta ár. Eiríkur segir jákvætt að fá líf í kviðuna á ný og hún geti höfðað til ungra lesenda.
„Bara mjög skemmtileg hasarmynd á epískum skala.“
Magnús Jochum Pálsson, kvikmyndagagnrýnandi og blaðamaður, er þegar búinn að fara á myndina tvisvar. „Þetta er bíómynd með stóru B-i, það er sjávarháski og skrímsli og slagsmál og blóð þannig að þetta er bara mjög skemmtileg Hollywood-mynd.“
Magnús telur að myndin standist væntingar. „Það er kannski búið að tromma hana mikið upp í fjölmiðlum erlendis en hún er bara mjög góð fyrir sína parta, bara mjög skemmtileg hasarmynd á epískum skala.“
Myndin hefur verið umdeild og Christoper Nolan meðal annars hlotið gagnrýni fyrir leikaraval sitt. Margir af frægustu leikurum Hollywood leika í myndinni.
Magnús telur gagnrýnina helst stafa af „leiðinlegum kimum netsins“ sem vilji helst frá Grikki í öll hlutverk, en sagan gerist í Forn-Grikklandi. „Ég held það virki bara ágætlega hjá honum, stóru nöfnin,“ segir hann.