Þrír listar eru í framboði á Seltjarnarnesi fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Oddvitar þeirra mætast í umræðum. Þátttakendur eru:
- Kristinn Ólafsson, oddviti Samfylkingarinnar
- Skafti Harðarson, oddviti Miðflokksins
- Þór Sigurgeirsson, oddviti Sjálfstæðisflokksins
Um 4.600 manns búa í Seltjarnarnesbæ og er sveitarfélagið það tólfta fjölmennasta á Íslandi. Umsjónarmaður er Anna Kristín Jónsdóttir.