Lettneska þingið staðfesti í dag nýja fjögurra flokka ríkisstjórn tveimur vikum eftir að stjórn Eviku Silina hraktist frá völdum vegna deilna um drónavarnir.
Andris Kulbergs, 47 ára gamall miðjumaður, tekur við fram að kosningum sem verða haldnar 3. október. Dagskipun stjórnarinnar er að efla varnir landsins.
Silina sagði af sér 14. maí eftir að hafa látið varnarmálaráðherrann taka pokann sinn. Hún sakaði ráðherrann um að hafa ekki virkjað drónavarnir nægilega snemma þegar tveir úkraínskir drónar rötuðu inn fyrir lofthelgi landsins og ollu smávægilegum skemmdum. Silina missti í kjölfarið stuðning flokks varnarmálaráðherrans fyrrverandi.
Margir drónar hafa flogið inn í lofthelgi Lettlands síðustu misseri, bæði rússneskir og úkraínskir, án þess þó að valda teljandi skemmdum, og var síðustu ríkisstjórn legið á hálsi fyrir að hafa ekki brugðist nógu hratt við slíkum tilfellum.
Nýja ríkisstjórnin hefur rúman meirihluta á lettneska þinginu. Stjórnarflokkarnir sem eru fylgjandi samstarfi við Evrópusambandið og NATO hafa lagt áherslu á mikilvægi þess að efla varnir landsins.