Sænska þingið hefur ákveðið að banna hjónabönd frændsystkina og annarra náinna skyldmenna.
Frumvarp þess efnis var samþykkt nær einróma í þinginu og lögin taka gildi 1. júlí. Engar undanþágur verða veittar frá ákvæðum þeirra, meðal annars verða ekki staðfest skyldleikahjónabönd sem verða til erlendis. Norðmenn staðfestu svipuð lög í fyrra.
Samkvæmt ákvæðum íslenskra hjúskaparlaga þurfa frændsystkini aðeins að hafa náð 18 ára aldri og vera lögráða til að mega ganga í hjónaband. Bann við giftingu systkinabarna var afnumið úr lögum árið 1972. Því er aðeins bannað að vígja hjónaband systkina og skyldmenna í beinan legg, á borð við foreldri og barn.