Ný brú yfir Breiðholtsbraut milli Jaðarsels og Vatnsendahvarfs verður opnuð í fyrramálið. Loka þarf veginum í nótt á meðan unnið er að undirbúningi fyrir færslu umferðar.
Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að opnun brúarinnar sé stór áfangi í framkvæmdum við nýjan Arnarnesveg milli Rjúpnavegar og Breiðholtsbrautar.
Breiðholtsbraut milli Jaðarsels og Vatnsendahvarfs verður lokað klukkan 23 í kvöld til klukkan 6 í fyrramálið. Þá verður opnað fyrir bílaumferð yfir nýja brú yfir Breiðholtsbraut og samhliða verða ný umferðarljós við gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar tekin í notkun.
Jafnframt verður umferð hleypt á Arnarnesveg milli Breiðholtsbrautar og Vatnsendavegar, auk þess sem nýr hluti Vatnsendavegar milli Arnarnesvegar og Vatnsendahvarfs verður opnaður.
Samhliða þessu verður gatnamótum Vatnsendahvarfs og Breiðholtsbrautar lokað, umferðarljós þar fjarlægð og skipulagi gatnamótanna breytt. Áætlað er að þau verði opnuð í breyttir mynd síðla hausts.
Ökumönnum er bent á að aka til og frá Vatnsendahvarfi í gegnum Vatnsendaveg, nýtt hringtorg við Arnarnesveg og ný gatnamót á Breiðholtsbraut.