Í kvöldfréttum Sýnar var fjallað um veginn milli Þórshafnar og Bakkafjarðar en sveitarfélögin voru sameinuð árið 2006. Þá varð til Langanesbyggð og núna loksins tuttugu árum síðar er að koma uppbyggður vegur með bundnu slitlagi milli byggðanna.
Auk betri tengingar innan héraðs skapast hér áhugaverðari valkostur á ferðalögum um norðausturhorn landsins; í stað þess að aka hringveginn hefðbundna um Möðrudalsöræfi að fara beinan og breiðan veg um strandbyggðirnar norðaustanlands.
Tíu manna vinnuflokkur verktakafyrirtækisins Skútabergs frá Akureyri hóf verkið í fyrrasumar en tilboð þess hljóðaði upp á 862 milljónir króna, eða 93,5 prósent af kostnaðaráætlun. Verkstjórinn Sigurbergur Konráðsson segir heimamenn hafa lengi beðið eftir þessum vegarbótum.
„Eins og elstu menn tala þá eru nokkrir áratugir síðan var farið að strika þessa veglínu. Og hún er loksins að koma núna, þrjátíu til fjörutíu ár síðan, held ég,“ segir Sigurbergur.
Nýi kaflinn yfir Brekknaheiði er 7,6 kílómetra langur og liggur hæst í 408 metra hæð yfir sjávarmáli. En eru verktakarnir að vinna þarna allt árið og yfir háveturinn líka?
„Það var nú smá stopp í vetur í einhverja tvo mánuði. En það var góður vetur framan af. Þetta er svolítið erfitt veðursvæði hérna, mikil úrkoma og ísing og raki.“
-Og kannski geta gerst stórviðri hér að vetri?
„Já, já, það verður hvasst hérna.“
Núverandi veglínu er aðeins fylgt á stuttum kafla, í Vatnadal upp úr Gunnólfsvík, en annars liggur nýja leiðin að mestu í nýju vegstæði.
„Ég hugsa að hann verði nú betri upp á snjó heldur en gamli vegurinn. Hann er meira uppbyggður úr landinu,“ segir verkstjórinn.
Næst Þórshöfn færast vegamótin örlítið sunnar, um 150 metrum fjær byggðinni.
Ásamt veðrinu hefur helsta áskorunin verið að vinna gott grjót í fyllingarefni.
„Við vinnum námurnar með sprengingum og kannski svona svolítið umrót í lausu efni til að komast í bestu klappirnar.“
Þeir vinna frá klukkan átta á morgnana til sjö á kvöldin. Megnið af undirlagi, segir Sigurbergur, er komið út í vegstæðið og byrjað sé á yfirborðsfrágangi og segir hann verkið á áætlun.
-Og hvenær ætlið þið svo að klára?
„Ja, næsta sumar í ágúst,“ svarar Sigurbergur Konráðsson, verkstjóri Skútabergs á Brekknaheiði, hér í sjónvarpsfrétt Sýnar: