Nei-sinnar auglýsa „raunverulega hættu á“ sæstreng frá ESB

Nei-sinnar auglýsa „raunverulega hættu á“ sæstreng frá ESB

Nei-sinnar auglýsa „raunverulega hættu á“ sæstreng frá ESB

Nei-sinnar auglýsa „raunverulega hættu á“ sæstreng frá ESB

Aug­lýs­ing­ar á Rás 2 segja „raun­veru­lega hættu“ á að Evr­ópu­sam­band­ið leggi sæ­streng til Ís­lands og hækki orku­verð. Álits­gerð laga­pró­fess­ora sagði lagn­ingu sæ­strengs á for­ræði rík­is­ins. Malta fagn­aði fjár­mögn­un á sæ­streng til eyj­ar­inn­ar.

„Þetta er raunveruleg hætta,“ segir í auglýsingu á Rás 2, sem flutt var í dag, þar sem boðað var að Evrópusambandið gæti lagt sæstreng til Íslands, hækkað orkuverð og sett þrýsting á að „virkja íslenska íslenska náttúru til að mæta orkuþörf Evrópu“.

Auglýsingin er merkt Þjóðmálum og virðist þar vísað til fjölmiðilsins Þjóðmála, sem heldur úti hlaðvarpi.

„Segjum nei við framsali íslenskra orkuauðlinda“

Í auglýsingu Þjóðmála er hins vegar gefið til kynna að Íslendingum stafi hætta af Evrópusambandinu í orkumálum. 

„Verður Íslandi stungið í samband?“ sagði í auglýsingunni, sem flutt var meðal annars í auglýsingahléi Síðdegisútvarps Rásar 2 í dag. Undir lestrinum hljómaði dramatísk tónlist.  

„Sæstrengur myndi tengja Ísland við evrópska raforkukerfið. Íslensk orka myndi streyma úr landi, raforkuverð hækka og þrýstingur myndi aukast á að virkja íslenska náttúru til að mæta orkuþörf Evrópu. Þetta er raunveruleg hætta. Kýpur er síðasta ESB-ríkið sem er enn ótengt, en ESB vinnur að því að leggja sæstreng til Kýpur. Þannig stefnir sambandið á að samtengja raforkukerfi allra aðildarríkjanna. Segjum nei við hærra orkuverði. Segjum nei við framsali íslenskra orkuauðlinda. Segjum nei við ESB. Þjóðmál.“

Auglýsing ÞjóðmálaÍslendingar varaðir við „raunverulegri hættu“.RÚV

Malta fékk fjármögnun frá ESB

Lagning sæstrengs til Kýpur snýst um að rjúfa einangrun eyjunnar, en 92% af orkunotkun Kýpverja kemur úr olíu. Fjármögnunin kemur að hluta úr sjóði ESB sem styður efnahagslega endurreisn aðildarríkja.

Evrópusambandið hefur styrkt lagningu orkuinnviða. Evrópski fjárfestingabankinn, sem er lánastofnun Evrópusambandsins í eigu aðildarríkjanna 27, tilkynnti í vor að hann myndi lána til lagningar sæstrengs til Möltu frá Sikiley. Fjármálaráðherra Möltu, Clyde Caruana, sagði um að ræða „mikilvæga fjárfestingu fyrir langtíma stöðugleika í hagkerfi Möltu.“

„Með því að styrkja orkuinnviði okkar verðum við minna berskjölduð fyrir ytri áföllum, bætum framboðsöryggi og styðjum stöðugt orkuverð fyrir heimili og fyrirtæki,“ sagði hann. Fjárfestingin er hluti af orkustefnu Möltu, sem studd er af ESB.

Auglýsingin í andstöðu við álitsgerð

Efni auglýsingar Þjóðmála er í beinni andstöðu við álitsgerð þriggja lagaprófessora við Háskólann í Reykjavík, sem fjölluðu meðal annars um orkumál Evrópusambandsins.

Álitsgerðin var til umræðu eftir að Morgunblaðið vitnaði ranglega í hana um að ekki væru undanþágur í boði við aðild að Evrópusambandinu, samkvæmt því sem prófessorarnir sögðu í yfirlýsingu þar sem þeir sögðu fréttina ósanna.

„Innganga Íslands í ESB myndi því hafa óveruleg áhrif á orkulöggjöfina hér á landi þar sem Ísland er nú þegar aðili að henni að öllu verulegu leyti,“ segir í álitsgerðinni. „Yfirráð yfir auðlindinni í hverju aðildarríki fyrir sig og ávinningur af henni er hins vegar í höndum aðildarríkjanna sjálfra.“

Fjallað er sérstaklega um sæstreng í álitsgerðinni, sem unnin var fyrir utanríkisráðuneytið, sem vinnur að aðildarumsóknarmálum. 

„Verður ESB ekki talið vera með valdheimildir til að leggja samtengil (t.d. sæstreng) í óþökk aðildarríkis til annarra aðildarríkja ESB eða skipa aðildarríki að leggja slíkan samtengil til að tengjast innri raforkumarkaði ESB. Hefur enda engin afleidd löggjöf verið sett sem felur í sér slíka skyldu.“

Þá er vitnað til nýlegs dóms Almenna dómstóls ESB sem veiti vísbendingu um að „valdið til að ákveða nýja/aukna tengingu milli aðildarríkja ESB, og því einnig EES/EFTA-ríkjanna, liggi alfarið hjá aðildarríkjunum.“

Prófessorarnir taka fram að „þrátt fyrir takmarkaðar valdheimildir að þessu leyti er alveg ljóst að ESB hefur áhuga á samtengingu orkumarkaða með það að markmiði að tryggja orkuöryggi í aðildarríkjum þess.“

Þessi stefnumótun, undir formerkjum „samstöðu í orkumálum“, hafi hlotið meira vægi í kjölfar innrásarstríðs Rússlands í Úkraínu með tilheyrandi orkukreppu í Evrópu.

Í álitsgerðinni kemur líka fram að Íslendingar hafi „fengið fengið undanþágur á grundvelli EES-samningsins frá ákveðnum gerðum eða hluta þeirra. Þær byggjast á einstakri stöðu Íslands á sviði orkumála sem yrði haldið á lofti ef til aðildarviðræðna kæmi, samkvæmt því sem fram kemur í áliti meiri hluta utanríkismálanefndar frá árinu 2026.“

Metmálþóf gegn orkupakkanum

Meðlimir Miðflokksins héldu uppi lengsta málþófinu í sögu Alþingis árið 2019, þegar þeir töluðu í 147 klukkustundir um svokallaðan þriðja orkupakka Evrópusambandsins. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, sagði „raunverulegan möguleika“ á því að Ísland gæti orðið orkuver fyrir Evrópu, en að bannað yrði fyrir „okkur Íslendinga að laða hingað æskilega fjárfestingu með því samkeppnisforskoti sem við höfum með ódýrri orku“. 

Meðal þeirra sem andmæltu túlkun Miðflokksins á Þriðja orkupakkanum voru samtökin Samorka, sem telja  fráveitur, hitaveitur, vatnsveitur, raforkuframleiðendur, raforkusalar og flutnings- og dreifingarfyrirtæki raforku. „Þriðji orkupakkinn hefur ekki áhrif á ákvarðanir stjórnvalda um millilandatengingar til annarra ESB/EES aðildarríkja umfram það sem núna er tiltekið í EES-samningnum,“ sagði meðal annars í umfjöllun samtakanna sem gagnrýndi villandi umræðu um orkumálin.

Málþófsmetið var síðan slegið af meðlimum Miðflokksins og Sjálfstæðisflokksins í umræðu um veiðigjöld á Alþingi í fyrrasumar.

Auglýsingastjóri Ríkisútvarpsins hefur ekki svarað fyrirspurn Heimildarinnar í kvöld um auglýsinguna og verklag varðandi kosningaauglýsingar.

#auglýsa #hættu #nei #raunverulega #sinnar

Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/27165/auglysingar-nei-sinna-segir-saestreng-fylgja-esb/

📰 Aðrar fréttir

„Þessi á­kvörðun mun kosta mörg manns­líf“ - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Þessi á­kvörðun mun kosta mörg manns­líf“ - Vísir
Selenskí er í opinberri heimsókn í Bretlandi og gaf sér tíma til að mæta í viðtal hjá Piers Morgan. Þar var fjallað um takmarkanirnar á Starlight-tækn...
Dog that hunts invasive sea creature named animal of the year
📅 14.10.2026 👁️ 4
Dog that hunts invasive sea creature named animal of the year
A working is named animal of the year for hunting out an invasive marine creature, the carpet sea squirt.
Óvissustig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­víkur­hlíð - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Óvissustig vegna snjó­flóða­hættu í Súða­víkur­hlíð - Vísir
Vegagerðin setur á óvissustig og tók hún gildi klukkan tíu í kvöld. Óvissustig þýðir að veginum gæti verið lokað með skömmum fyrirvara. Einnig eru Þrö...
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð
📅 14.10.2026 👁️ 4
Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð
Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð á Vestfjörðum. Appelsínugul veðurviðvörun er í gildi á Vestfjörðum, Strönd...
Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Verðkröfur stjórn­valda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá - Vísir
Lyfjafyrirtæki þurfa að sækja um markaðsleyfi í öllum ríkjum þar sem til stendur að setja lyf á markað. Mikill fjöldi nýrra sérhæfðra lyfja hefur komi...
Fróaði sér í lest í þrettán klukkutíma – „Drykkjan ber mig stundum ofurliði“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Fróaði sér í lest í þrettán klukkutíma – „Drykkjan ber mig stundum ofurliði“
Breskur maður á fertugsaldri hefur verið handtekinn eftir að hafa fróað sér í lest, meðal annars fyrir framan konur, í samanlagt 13 klukkutíma. Maðuri...
Reform faces criticism after councillors filmed making racist comments
📅 14.10.2026 👁️ 4
Reform faces criticism after councillors filmed making racist comments
Reform says all of those people filmed by ITV are under investigation having resigned or been suspended.
Cappuccino fyrir eigendur og puppoccino fyrir hundana
📅 14.10.2026 👁️ 4
Cappuccino fyrir eigendur og puppoccino fyrir hundana
Gestir á kaffihúsi einu í Kópavogi eru misvel upp aldir en allir jafn velkomnir, hvort sem þeir ganga á tveimur jafnfljótum eða fjórum fótum. Á kaffih...
Brooklyn novelty shop reeling from 'surreal' row with Kelly Clarkson over mechanical bird
📅 14.10.2026 👁️ 4
Brooklyn novelty shop reeling from 'surreal' row with Kelly Clarkson over mechanical bird
Art of Play says its staff have been threatened after the singer complained online about how she was treated.
Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum
📅 14.10.2026 👁️ 4
Hefur sofið hjá yfir 100 giftum karlmönnum – Segist bjarga hjónaböndum
Saurora Grace er 32 ára kona frá Manchester í Englandi. Hún starfar sem svokallaður kynlífsstaðgengill eða sex surrogate, einstaklingur sem aðstoðar f...
Val­höll skrefi nær því að verða níu­tíu her­bergja hótel - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Val­höll skrefi nær því að verða níu­tíu her­bergja hótel - Vísir
Valhöll hefur um áratugaskeið verið þekkt sem höfuðstöðvar Sjálfstæðisflokksins. Alva capital og flokkurinn undirrituðu kaupsamning um húsið í febrúar...
Sigríður og eiginmaður hennar eru 1 af 6: „Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Sigríður og eiginmaður hennar eru 1 af 6: „Við hjónin höfum oft lent á vegg með kostnað meðferða“
„Ég og maðurinn minn erum 1 af 6. Við erum eitt af þeim pörum sem vita manna best að barneignir eru ekki sjálfgefnir lífsviðburðir heldur ferli sem in...
Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Bækur Rooney teknar úr sölu í Bret­landi - Vísir
Faber, útgefandi Rooney, sagði í yfirlýsingu í dag að vegna lagasetningar í Bretlandi geti Faber ekki greitt Rooney tekjur sem aflað er í Bretlandi fy...
Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Um­sátur opin­berar skuggastríð mála­liða - Vísir
Prince, sem hefur verið dyggur stuðningsmaður Donalds Trump Bandaríkjaforseta, rekur nú málaliðafyrirtækið Vectus Global, sem starfar meðal annars á H...
UK threatens visa bans for Eritrea over migrant return policy
📅 14.10.2026 👁️ 4
UK threatens visa bans for Eritrea over migrant return policy
The home secretary said she would not hesitate to impose measures on other countries "refusing to co-operate".
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að hálka geti myndast í efri byggðum
📅 14.10.2026 👁️ 4
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við því að hálka geti myndast í efri byggðum
Nokkuð kólnar í veðri á höfuðborgarsvæðinu með kvöldinu og í fyrramálið og viðbúið að hitinn verði nálægt frostmarki í efri byggðum. Lögreglan hvetur ...
Ugla yfir­gefur borgina - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ugla yfir­gefur borgina - Vísir
„Jæja, litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ skrifar hann í færs...
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps
📅 14.10.2026 👁️ 4
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps
Úkraína gerir árásir á tvær rússneskar olíuhreinsistöðvar þrátt fyrir kröfur Trumps Fréttin14. október 2026Erlent, Trump, ÚkraínustríðiðLeave a Commen...
Segir Jennifer Aniston hafa gefið sér kynlífstæki til að niðurlægja sig
📅 14.10.2026 👁️ 4
Segir Jennifer Aniston hafa gefið sér kynlífstæki til að niðurlægja sig
Leikstjórinn Penelope Spheeris gagnrýndi leikkonuna Jennifer Aniston fyrir að hafa, eftir því sem Spheeris heldur fram, gefið henni kynlífstæki í þeim...
Árni og hliðarsjálf hans Ugla Tré flytja sig um set
📅 14.10.2026 👁️ 4
Árni og hliðarsjálf hans Ugla Tré flytja sig um set
„Jæja litla hreiðrið mitt í Grafarvogi komið á sölu. Uglan tekur sig til flugs og stefnir á Reykjanesið, eftir 16 ár í borginni,“ segir Árni Árnason, ...
Mynd af hinstu stundinni í rússíbananum í dreifingu – Fjölskyldan biðlar til almennings að hætta að dreifa
📅 14.10.2026 👁️ 4
Mynd af hinstu stundinni í rússíbananum í dreifingu – Fjölskyldan biðlar til almennings að hætta að dreifa
Maðurinn sem lést í rússíbanaslysinu í Georgíufylki í fyrradag var nýgenginn í samtök rússíbanaáhugafólks. Samfélagið er í molum og krefst aðgerða til...
„Ég fullyrði að það séu engir einkakaupasamningar í gangi“
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Ég fullyrði að það séu engir einkakaupasamningar í gangi“
Andri Þór Guðmundsson, stjórnarformaður Beru móðurfélags Ölgerðarinnar, og fyrrum forstjóri Ölgerðarinnar til tveggja áratuga segir fyrirtækið alltaf ...
Tekið að flæða að húsum í Vík
📅 14.10.2026 👁️ 4
Tekið að flæða að húsum í Vík
Nokkrar líkur eru á að sjór geti flætt yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal á háflóði í kvöld og því gæti þurft að loka honum. G. Pétur Matthíass...
Ólíklegt að flæði yfir þjóðveginn við Vík
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ólíklegt að flæði yfir þjóðveginn við Vík
Ólíklegt þykir að sjór flæði yfir þjóðveg eitt austan við Vík í Mýrdal. Vegagerðin og björgunarsveitir voru viðbúnar því að veginum yrði lokað því öld...
Lentu í öldu­gangi við Reynisfjöru - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Lentu í öldu­gangi við Reynisfjöru - Vísir
Heiðrún Hauksdóttir, einnig þekkt sem Heidrunguide, var stödd í Reynisfjöru fyrr í dag þar sem töluverður öldugangur var. Hún náði þessu myndskeiði þa...
Starlink: Musk says US government may be behind slowdown of Ukraine drone speeds
📅 14.10.2026 👁️ 4
Starlink: Musk says US government may be behind slowdown of Ukraine drone speeds
Ukraine says Starlink access has improved but it is still facing speed limits which are disrupting its battlefield "missions".
Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart
📅 14.10.2026 👁️ 4
Umfjöllun Kveiks hafi ekki komið á óvart
Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins, segir gríðarlega mikilvægt að markaðir séu opnir og að það sé ekki komið í veg fyrir að ný fyri...
Ozempic gerir óskunda í samskiptum mæðra og dætra
📅 14.10.2026 👁️ 4
Ozempic gerir óskunda í samskiptum mæðra og dætra
Þið hafið kannski heyrt um Ozempic-hár, -píku, -typpi, -andlit og fleira sem rekja má til aukaverkana eða óvæntra afleiðinga þessu vinsæla þyngdarstjó...
Gefur í skyn að banda­rísk stjórn­völd hafi sett tak­markanir á Úkraínu­menn - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Gefur í skyn að banda­rísk stjórn­völd hafi sett tak­markanir á Úkraínu­menn - Vísir
Fjallað var um það á Vísi í dag að úkraínskir hermenn hafi fundið fyrir takmörkunum sem felast í því að þegar móttökustöðvarnar nái tilteknum hraða sl...
Stigu trylltan dans á Saint Pete - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Stigu trylltan dans á Saint Pete - Vísir
Meðal annarra tónlistaratriða voru Herra hnetusmjör, Úlfur Úlfur, Elvar Orri og Steindi og Auddi en þeir síðastnefndu fengu Pétur til liðs við sig í s...
Skiptar skoðanir á Kveiksþættinum: „Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Skiptar skoðanir á Kveiksþættinum: „Var þetta stóra afhjúpunin? Klaustur-bar hvað!?“
„Ekki skiptir maður við bófa! Hvað verður um hátíðarblandið? Hvar er núna gamla (en alls ekki bragðgóða) Sanitas maltið, Thule appelsínið og Vallasdry...
Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu
📅 14.10.2026 👁️ 4
Hríðarviðvaranir á Norðurlandi með kvöldinu
Búast má við talsverðri ofankomu sem hefur áhrif á færð og samgöngur á norðanverðu landinu fram á kvöld og inn í nóttina, segir Hera Guðlaugsdóttir ve...
Verkalýðsbaráttan er eilífðarverkefni segir fráfarandi forseti
📅 14.10.2026 👁️ 4
Verkalýðsbaráttan er eilífðarverkefni segir fráfarandi forseti
Forseti ASÍ og forsætisráðherra ræddu lærdóminn af kjarasamningunum í ávörpum við setningu þriggja daga þings Alþýðusambandsins í morgun. Báðir frambj...
Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“
📅 14.10.2026 👁️ 4
Gleraugnaverslun fékk óvænta bótakröfu vegna myndbands á samfélagsmiðli - „Án nokkurs ásetnings til að hlunnfara listamanninn“
Eigendur gleraugnaverslunar sem barst krafa um bótagreiðslu, vegna notkunar á tónlist í myndbandi á samfélagsmiðli, leggja til að höfundalögum verði b...
„Ég sá bara upp í himininn upp um þaklúguna“
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Ég sá bara upp í himininn upp um þaklúguna“
Þrjú þök fuku af húsum á Siglufirði í veðurofsanum sem gengur nú yfir mestallt landið. Þakið á heimili Karenar Birgisdóttur, er eitt þeirra sem fauk.H...
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru
📅 14.10.2026 👁️ 4
Viðbragðsáætlun virkjuð vegna mikillar ölduhæðar við Reynisfjöru
Nokkuð hættulegar aðstæður mynduðust við Reynisfjöru í dag vegna veðurs og mikillar ölduhæðar, fyrr en spár gerðu ráð fyrir. Landeigendur höfðu virkja...
McCartney tjáir sig um helsta áhyggjuefni sitt varðandi fjórleikinn um Bítlana
📅 14.10.2026 👁️ 5
McCartney tjáir sig um helsta áhyggjuefni sitt varðandi fjórleikinn um Bítlana
Bítillinn Paul McCartney er ekki ánægður með hvernig hæð hans er framsett í væntanlegri fjögurra þátta kvikmynd Sam Mendes um Bítlana.„Við vorum allir...
Gekk berserksgang á heilsugæslustöð og hótaði læknum lífláti
📅 14.10.2026 👁️ 5
Gekk berserksgang á heilsugæslustöð og hótaði læknum lífláti
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um áframhaldandi gæsluvarðhald yfir síbrotamanni til 3. nóvember næstkomandi.
Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“
📅 14.10.2026 👁️ 5
Sjúkratryggingar sitja áfram á samningnum: „Þetta er mjög furðulegt“
Sjúkratryggingar Íslands hafa ekki afhent Rótinni aðgang að samningi sínum við SÁÁ líkt og stofnunin átti að gera samkvæmt úrskurði úrskurðarnefndar u...
Airport drop-off charges to be reviewed after sharp increase
📅 14.10.2026 👁️ 4
Airport drop-off charges to be reviewed after sharp increase
Confirming the review, the government said it was "vital to ensure travel remains accessible and that passengers are treated fairly".
Skildu þýfið eftir á vett­vangi í stolnum bíl - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 5
Skildu þýfið eftir á vett­vangi í stolnum bíl - Vísir
Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þar segir að eftir smá grennslan hafi komið í ljós að meintir þjófar höfðu brotist inn, s...
Verðbólga í Bandaríkjunum jókst meira en spáð var
📅 14.10.2026 👁️ 4
Verðbólga í Bandaríkjunum jókst meira en spáð var
Verðbólga í Bandaríkjunum jókst meira í september en sérfræðingar höfðu gert ráð fyrir. Hún mældist 3,7%, sem er örlítið meira en þau 3,6% sem spáð ha...
We are behind you and that will not change, PM tells Zelensky
📅 14.10.2026 👁️ 4
We are behind you and that will not change, PM tells Zelensky
The Ukrainian president visited London in an effort to bolster support among European allies following a row with Donald Trump.
Vill sleppistæði við ungbarnaleikskóla og segir vandann heima­til­búinn - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Vill sleppistæði við ungbarnaleikskóla og segir vandann heima­til­búinn - Vísir
Magnea samdi tillöguna sem fulltrúar meirihlutans, Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknar, lögðu fram og var samþykkt í ráðinu í dag. „Tillaga...
Vandinn heima­til­búinn og vill sleppistæði - Vísir

Með gaddakúlu og sprautunálakylfu - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Með gaddakúlu og sprautunálakylfu - Vísir
Ákæran er birt í Lögbirtingablaðinu þar sem ekki hefur tekist að birta honum ákærurnar.  Í fyrstu ákærunni er honum gefið að sök að hafa veist að mann...
„Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ - Vísir
Um er að ræða undarlegt mál sem hefur farið eins og eldur í sinu samfélagsmiðla síðustu daga. Málið má rekja aftur til síðustu helgar þegar Clarkson h...
Sjórinn flæddi yfir bryggjuna á Skagaströnd
📅 14.10.2026 👁️ 4
Sjórinn flæddi yfir bryggjuna á Skagaströnd
„Það var flóð í hádeginu. Þá stóð pusið alveg yfir bryggjuna,“ segir Baldur Magnússon, hafnarvörður á Skagaströnd.Þar hafa hviður farið upp í allt að ...
„Það væri mjög miður“ - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
„Það væri mjög miður“ - Vísir
Þetta segir Finnbjörn Hermannsson í samtali við fréttastofu í morgun, rétt áður en þing Alþýðusambandsins hófst.  Þingið hófst klukkan tíu í morgun á ...
Litli spítalinn án samnings og ráð­herra sér ekkert svig­rúm - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 4
Litli spítalinn án samnings og ráð­herra sér ekkert svig­rúm - Vísir
Litli spítalinn er einkarekin heilbrigðisþjónusta sem er í undirbúningi við Háaleitisbraut 68. Guðrún Ása Björnsdóttir sérfræðilæknir stendur að verke...