Elvar Þormar, hugmyndasmiður og eigandi Reon, segir vefinn hafa komið til vegna þess hve gríðarlega mikið af upplýsingum er í boði. Þeir hafi viljað taka þær saman og nýta gervigreindina til að setja þær fram eins hlutlaust og mögulegt er í formi svara við spurningum sem fólk kann að hafa.
Hann segir að nú þegar hafi um tíu þúsund spurningar verið sendar inn á vefinn og þá hafi margir spurt gervigreindina út í kjör og fiskeldi en einnig séu einhverjir að velta fyrir sér hvort að hér á landi verði herskylda.
Tilgangurinn sé að einfalda fólki ákvarðanatökuna og að við gerð vefsins hafi hann og fleiri lagt sig fram við að hafa svörin sem hlutlausust og taki tillögum um fleiri gagnagrunna opnum örmum.