Nauðgun sögð ósönnuð þótt ákærði hafi verið margsaga en brotaþoli trúverðug - „Stopp, ég vil ekki gera þetta“ - DV

Landsréttur hefur staðfest sýknudóm Héraðsdóms Reykjaness yfir manni sem ákærður var fyrir nauðgun. Segir rétturinn að framburður mannsins hafi verið misvísandi en framburður brotaþolans verið trúverðugur og ekki tekið neinum breytingum en hins vegar sé það ósannað að maðurinn hafi gerst sekur um nauðgun. Vinkona konunnar sem lá við hlið hennar og mannsins bar að brotaþolinn hefði sagt honum að hætta en rétturinn segir framburð hennar hafa meðal annars litast um of af því sem brotaþolinn hefði sagt henni og styðji því ekki við framburð brotaþolans.

Brotaþolinn er kona og kærði hún nauðgunina í febrúar 2023 og sagði hana hafa átt sér stað á heimili mannsins eftir að hún fór þangað ásamt vinkonu sinni eftir að þær hittu hann í miðborg Reykjavíkur.

Fengu konurnar að gista á heimili mannsins og lögðust þau öll til svefns í sama rúmi.

Í dómi Landsréttar kemur fram að vinkonan hafi sagt manninn hafa sagt henni að fara að sofa og farið svo að áreita vinkonu hennar kynferðislega. Brotaþolinn hafi beðið hann um að bíða með kynlíf þar til daginn eftir en maðurinn haldið áfram. Hann hafi tekið í höndina á brotaþola og sett á kynfæri sín og
svo haft við hana samfarir. Er þess einnig getið að ungur sonur mannsins hafi verið sofandi á heimilinu á meðan þetta átti sér stað. 

Ósamræmi

Landsréttur segir ósamræmis hafa gætt í framburði mannsins hjá lögreglu og fyrir héraðsdómi. Í dómi héraðsdóms sé því lýst að misræmi hafi verið í framburði hans varðandi það hvar barn hans var umrædda nótt en framburður hans í heild metinn trúverðugur. Misræmi sé um ýmis önnur atriði í framburði mannsins hjá lögreglu og fyrir dómi.

Meðal annars komi fram í skýrslu hans hjá lögreglu að kynmök hans og brotaþolans hafi hafist á því að hún hafi strokið lim hans og hann nuddað sníp hennar. Fyrir dómi hafi hann lýst atvikum á annan veg og sagt að þau hefðu ekki snert kynfæri hvors annars heldur haldið utan um hvort annað en síðan hafi hann sagt að það gæti verið að hann hafi strokið sníp hennar en hann myndi það ekki vel.

Hjá lögreglu hafi maðurinn borið að hann hefði spurt konuna hvort hún vildi hafa samfarir, og hún svarað því játandi, en fyrir dómi hafi hann sagt, aðspurður um hvernig hann hafi vitað að brotaþoli vildi stunda kynlíf, að hún hefði spurt hvort þau gætu gert það hljóðlega því vinkona hennar væri í rúminu. Þá hafi hann lýst því fyrir lögreglu að samförum þeirra hefði lokið með því að brotaþoli hefði allt í einu orðið eitthvað skrýtin, hún „bara svona einhvern veginn slaknað öll niður og eitthvað“ og þá hafi
þau hætt. Á hinn bóginn í skýrslutöku hjá lögreglu hafi hann sagt vinkonuna hafa ýtt við brotaþolanum og beðið hana að koma með sér inn á baðherbergi. Fyrir dómi hafi hann aftur á móti sagt brotaþola hafa
sagt „bíddu aðeins“ og þá hefði hann stoppað og hún farið inn á baðherbergi.

Landsréttur segir að þetta ósamræmi, sem maðurinn hafi ekki að öllu leyti getað gefið fullnægjandi skýringar á fyrir dómi, dragi að nokkru úr trúverðugleika framburðar hans.

Samræmi

Landsréttur segir að á hinn bóginn hafi samræmis gætt í framburði brotaþola og ekkert sé komið fram sem dragi út trúverðugleika hennar. Hún segi að hún hefði margítrekað sagt manninum að hún vildi ekki stunda kynlíf með honum en hann hafi virt þann vilja hennar að vettugi. Fyrir dómi hafi hún lýst því nánar þannig að þau þrjú, maðurinn, hún sjálf og vinkona hennar, hefðu lagst í rúmið og hún og ákærði byrjað að kyssast. Fljótlega hefði ákærði farið með hönd sína inn fyrir nærbuxur hennar en hún ýtt hendi hans burt og sagt honum að hún vildi gera þetta seinna því að vinkona hennar væri þarna. Síðar hefði hún spurt hvort þau gætu ekki gert þetta á morgun. Maðurinn hefði ítrekað tekið hönd hennar
og fært hana á lim sinn en hún jafnharðan dregið höndina til baka.

Sagði brotaþolinn að maðurinn hefði í engu skeytt um vilja hennar og haldið ágengni sinni áfram og spurt vinkonuna hvort hún vildi ekki bara vera með, sem hún hefði neitað. Loks hefði hann fært sig til í
rúminu og lagst á milli hennar og vinkonunnar og ýtt henni á hlið, lyft upp kjól hennar og fært nærbuxur hennar til hliðar og hafið samfarir við hana. Sagði konan að hún hefði orðið hrædd, frosið og farið að gráta en hún vissi þó ekki hvort einhver hafi heyrt hana gráta. Sagði brotaþolinn að maðurinn hefði hætt þegar hann hefði áttað sig á að hún væri ekki að taka neinn þátt og hann þá spurt hana hvort þau gætu hist á morgun. Hún hefði játað því til þess að geta komist heim. Að því búnu hefðu hún og vinkonan farið inn á baðherbergi og hringt í vin hennar sem hefði komið og sótt þær. Lýsti vinkonan atburðarásinni með sams konar hætti í skýrslutöku hjá lögreglu.

Vinkonan

Í dómi Landsréttar segir um framburð vinkonunnar að hann sé í samræmi við framburð brotaþolans um hvað gerðist á meðan kynmökunum stóð.

Fyrir dómi hafi vinkonan sagt að hún hefði lagst í rúmið og lokað augunum en verið vakandi allan tímann. Skömmu eftir að þau voru lögst í rúmið hefði brotaþoli eða einhver slegið hana í bakið. Síðar hefði hún heyrt brotaþola segja nei og að hún vildi þetta ekki núna. Síðar í framburði sínum hafi hún borið að brotaþoli hefði sagt „stopp, ég vil ekki gera þetta, ekki gera þetta, ég vil bara ekki gera þetta“, en maðurinn hefði ekki hætt.

Brotaþoli hefði haldið áfram að segja þetta. Vinkonan hafi sagst hafa áttað sig á því hvað væri í gangi, það er að maðurinn væri að nauðga vinkonu hennar, en hún hefði frosið og ekki getað komið vinkonu sinni til hjálpar fyrr en brotaþoli hefði slegið hana í bakið í annað eða þriðja sinn. Þá hefði hún risið úr rúminu og dregið brotaþola með sér inn á baðherbergi. Þar hefði ekki átt að fara á milli mála að brotaþoli vildi
ekki stunda kynmök í ljósi þess hve oft hún hefði sagt nei án þess að maðurinn léti af háttsemi sinni. Spurð um það af hverju hún hefði frosið útskýrði vinkonan það á þann hátt að hún hefði verið stressuð, verið „í sjokki“ og ekki getað staðið upp.

Blandast

Landsréttur segir að við mat á trúverðugleika framburðar vinkonunnar sé óhjákvæmilegt að líta til þess í hve ríkum mæli frásögn hennar fyrir dómi og í enn ríkari mæli hjá lögreglu hafi blandast saman við það sem hún segi að brotaþoli hafi sagt frá eftir á, inni á baðherbergi heima hjá manninum. Hún lýsi jafnframt neitun brotaþola með enn sterkari orðum en brotaþoli sjálf beri um að hún hafi tjáð sig með. Þá lýsi hún atvikum sem hún geti með engu móti hafa skynjað af eigin raun þar sem fyrir liggi samkvæmt framburði allra þriggja að hún hún hafi snúið baki í hin tvö og ekki séð það sem fram fór. Þá verði að meta framburð hennar með hliðsjón af tengslum hennar við brotaþola. Þetta dragi nokkuð úr sönnunargildi framburðar hennar.

Landsréttur segir að við mat á því hvort framburður brotaþolans fái næga stoð í öðrum sönnunargögnum sé fyrst og fremst að líta til frásagnar vinkonunnar og því að ekki sé hægt að byggja sakfellingu á framburðinum. Gögn málsins og framburður annarra vitna, þar með talin skýrsla sálfræðings og framburður hennar fyrir dómi, renni heldur ekki fullnægjandi stoð undir sakfellingu mannsins gegn eindreginni neitun hans. Verði í því efni að hafa í huga að vafinn sem uppi sé í málinu lúti að því hvort og þá hvenær manninum hafi verið eða mátt vera ljóst að kynmök hans og brotaþola hafi ekki farið fram með samþykki hennar.

Fallast verði á það með héraðsdómi að ekki sé sannað svo hafið sé yfir skynsamlegan vafa að ásetningur
mannsins hafi verið að brjóta á konunni. Var því dómur héraðsdóms um sýknu hans af ákæru um nauðgun staðfestur. 

Hægt er að kynna sér dóma Landsréttar og héraðsdóms nánar hér.

#nauðgun #sögð #ákærði #ósönnuð #þótt

Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/frettir/2026/5/21/naudgun-sogd-osonnud-thott-akaerdi-hafi-verid-margsaga-en-brotatholi-truverdug-stopp-eg-vil-ekki-gera-thetta/

📰 Aðrar fréttir

„Skilgreinum öryggi ansi þröngt“
📅 07.10.2026 👁️ 0
„Skilgreinum öryggi ansi þröngt“
Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, á frumkvæði að samtali laugardaginn 10. október til að ræða spurninguna: hvernig samfélag viljum við skapa saman? ...
Flugfreyja hjá Icelandair vill að flugdólgur greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
📅 07.10.2026 👁️ 0
Flugfreyja hjá Icelandair vill að flugdólgur greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært mann fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn loftferðum. Í ákæru segir að brotin hafi verið framin í flugi Ice...
Verða að viður­kenna barn getið með staðgöngumæðrun - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Verða að viður­kenna barn getið með staðgöngumæðrun - Vísir
Þetta er niðurstaða dóms dómstólsins í dag, þar sem hann svaraði spurningum sem Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði til hans varðandi túlkun tilskipunar og...
Leita að ökumanni hlaupahjóls sem ók á gangandi vegfaranda
📅 07.10.2026 👁️ 0
Leita að ökumanni hlaupahjóls sem ók á gangandi vegfaranda
Lögreglan á Suðurnesjum leitar ökumanns sem ók á gangandi vegfaranda á rafhlaupahjóli fyrir utan Kjörbúðina við Hafnargötu Reykjanesbæ í morgun.Lögreg...
Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryk­sugu“ Rúv - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryk­sugu“ Rúv - Vísir
Tómas kvaðst hafa starfað á fjölmiðlum í tuttugu ár. Honum þætti erfitt að sætta sig við að fá ekki lengur sjónvarpsfréttir klukkan hálfsjö á kvöldin,...
Við­ræður VR við SA á leið inn „blind­götu“ - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Við­ræður VR við SA á leið inn „blind­götu“ - Vísir
Innan við sólarhringur er nú þar til frestur til þess að segja upp kjarasamningum VR, LÍV og fagfélaganna annars vegar og SA hins vegar rennur út. Fél...
Tíma­rit eigi hvergi stað og fái enga styrki - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Tíma­rit eigi hvergi stað og fái enga styrki - Vísir
Opnað var fyrir umsóknir til úthlutunarnefndar í ágúst og rann frestur til að sækja um út þann 1. september. Úthlutunarreglum var breytt í sumar en sí...
Segir fjölmiðla­nefnd stjórn­lausa og sektaóða - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 0
Segir fjölmiðla­nefnd stjórn­lausa og sektaóða - Vísir
„Þetta er náttúrlega ríki í ríkinu,“ segir Þórarinn inntur eftir því hvað hafi farið fram á fundinum. Hann sátu ásamt ráðherra tveir sérfræðingar sem ...
Boots sold in $8.9bn deal to Canadian billionaire family
📅 07.10.2026 👁️ 1
Boots sold in $8.9bn deal to Canadian billionaire family
The sale of the High Street chain was announced on Wednesday.
Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin - Vísir
Ásgeir var í viðtali við fréttastofu spurður hvernig fyrirtæki og sveitarfélög gætu staðið við loforð um að hækka verð og gjaldskrár ekki umfram 2,5 p...
„Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
📅 07.10.2026 👁️ 1
„Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
„Það gengur ótrúlega vel hjá mér og nýju kærustunni minni, sambandið er frábært og við pössum svo vel saman. Eina vandamálið er að hún er kannski syst...
Einn frægasti líkamsræktaráhrifavaldur heims fluttur í skyndi á sjúkrahús vegna hjartavandamála
📅 07.10.2026 👁️ 1
Einn frægasti líkamsræktaráhrifavaldur heims fluttur í skyndi á sjúkrahús vegna hjartavandamála
Joey Swoll, einn þekktasti líkamsræktaráhrifavaldur heims, tilkynnti að hann hafi verið fluttur í skyndi á sjúkrahús á laugardagsmorgun vegna hjartava...
Flugfreyja hjá Icelandair vill að aldraður læknir greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
📅 07.10.2026 👁️ 1
Flugfreyja hjá Icelandair vill að aldraður læknir greiði henni eina og hálfa milljón vegna líkamsárásar og hótunar
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært mann fyrir líkamsárás, hótun og brot gegn loftferðum. Samkvæmt frétt Vísis er ákærði íslenskur læknir á nír...
Krefst skýringa á því hvers vegna annað eigi að gilda um Aþenu en önnur íþróttafélög í Reykjavík - „Hvar eru þau gögn?“
📅 07.10.2026 👁️ 1
Krefst skýringa á því hvers vegna annað eigi að gilda um Aþenu en önnur íþróttafélög í Reykjavík - „Hvar eru þau gögn?“
Töluvert hefur verið deilt um aðstæður körfuboltafélagsins Aþenu í Efra-Breiðholti. Brynjar Karl Sigurðsson þjálfari og einn helsti forvígismaður féla...
Sjúkt dýraklám fannst hjá Andrew Tate – Sýndi manneskjur í samförum við tvær dýrategundir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sjúkt dýraklám fannst hjá Andrew Tate – Sýndi manneskjur í samförum við tvær dýrategundir
Áhrifavaldurinn Andrew Tate, sem er grunaður um kynferðisbrot og var framseldur til Bretlands, var með dýraklám í símanum sínum. Hann tók einnig upp k...
Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tón­list í pólitískum á­róðri - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tón­list í pólitískum á­róðri - Vísir
Sverrir er einn þekktasti tónlistarmaður landsins og situr á þingi fyrir Samfylkinguna í Suðurkjördæmi. Hann tók sæti sem varaþingmaður fyrir Víði Rey...
Gera þarf kennara að stórstjörnum
📅 07.10.2026 👁️ 1
Gera þarf kennara að stórstjörnum
Einn helsti sérfræðingur OECD í Pisa-prófunum telur að Íslendingar geti bætt sig verulega með því að sýna kennurum og menntun meiri virðingu. Hann seg...
Nóbelsverðlaun fyrir að skilja að sameindir – markaði tímamót í lyfjaframleiðslu
📅 07.10.2026 👁️ 1
Nóbelsverðlaun fyrir að skilja að sameindir – markaði tímamót í lyfjaframleiðslu
Efnafræðingarnir Henri Kagan frá Frakklandi og Kenso Soai frá Japan fengu í morgun Nóbelsverðlaunin í efnafræði fyrir að uppgötva aðferð til að aðskil...
Geta ekki hafnað viðurkenningu á staðgöngumæðrun
📅 07.10.2026 👁️ 1
Geta ekki hafnað viðurkenningu á staðgöngumæðrun
EFTA-dómstóllinn komst í dag að þeirri niðurstöðu að íslensk stjórnvöld gætu hafa brotið gegn rétti barns með því að viðurkenna það ekki sem barn föðu...
Ru­bio hafi stað­fest varnar­skuld­bindingar gagn­vart Ís­landi - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Ru­bio hafi stað­fest varnar­skuld­bindingar gagn­vart Ís­landi - Vísir
Heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hingað til lands lauk í gær eftir fundi með Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og...
Breyti mynd­böndum af börnum að borða og dansa í barnaníðs­efni - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Breyti mynd­böndum af börnum að borða og dansa í barnaníðs­efni - Vísir
Guðný var til viðtals í Bítinu en fyrr í vikunni var greint frá því að tilkynnt um kynferðisbrot til lögreglu á fyrri árshelmingi hafi ekki verið flei...
Bein út­sending: Kennarar boða til tíðinda - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Kennarar boða til tíðinda - Vísir
Í tilkynningu frá KÍ segir að þetta sé í fyrsta sinn sem sambandið leggi fram sína sýn á þennan hátt.  Þar er einnig skrifað að íslenskt menntakerfi s...
Bein út­sending: Kennarar boða tíðindi - Vísir

Five arrested for inciting racial hatred outside Jewish group's headquarters, says Met
📅 07.10.2026 👁️ 1
Five arrested for inciting racial hatred outside Jewish group's headquarters, says Met
The Met Police say a "spontaneous protest" was staged outside the office of the Board of Deputies.
Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Fátt um svör frá Rússum um meinta plágu - Vísir
Áður hefur verið greint frá því að tugir manna hafi verið settir í sóttkví í Síberíu í Rússlandi eftir að starfsmaður rannsóknarstofu sem hefur það að...
France protests: Use of stun grenades suspended
📅 07.10.2026 👁️ 1
France protests: Use of stun grenades suspended
France has halted the use of stun grenades after a 15-year-old boys hand was blown off during student protests.
Kona stungin til bana við mat­vöru­verslun í Malmö - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Kona stungin til bana við mat­vöru­verslun í Malmö - Vísir
Árásin átti sér stað í Bellevuegården-hverfi í Malmö um klukkan tíu í morgun að sænskum tíma, að því er kemur fram í frétt sænska ríkisútvarpsins. Kon...
Man who murdered ex-partner after his prison release is jailed
📅 07.10.2026 👁️ 1
Man who murdered ex-partner after his prison release is jailed
Robert Sabat is given a 17-year-minimum jail term for the fatal stabbing of his former partner.
Rob Burrow would be 'laughing but proud' about knighthood - Sinfield
📅 07.10.2026 👁️ 1
Rob Burrow would be 'laughing but proud' about knighthood - Sinfield
Sir Kevin Sinfield is knighted by the Prince of Wales at Windsor Castle.
Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin - Vísir
Ásgeir var spurður um stöðu kjarasamninga og afstöðu Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, til sambands launa og verðbólgu að loknum kynningarfundi Seðlab...
Sagði upp fimm konum þegar hún gaf honum úrslitakosti
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sagði upp fimm konum þegar hún gaf honum úrslitakosti
Leikarinn Michael Douglas lætur allt flakka í nýrri sjálfsævisögu, One Helluva Ride.Hann segir meðal annars frá upphafi sambands hans og eiginkonu sin...
Katrín Lóa opnar sig um óhugnanlega upplifun í Liverpool
📅 07.10.2026 👁️ 1
Katrín Lóa opnar sig um óhugnanlega upplifun í Liverpool
Katrín Lóa Kristrúnardóttir varð fyrir alvarlegri áreitni á bar í Liverpool á Englandi um helgina, þegar hún sagði dyraverðinum hvað gerðist vildi han...
Sambandið með nýju kærustunni frábært – „Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sambandið með nýju kærustunni frábært – „Eina vandamálið er að hún er kannski systir mín“
„Það gengur ótrúlega vel hjá mér og nýju kærustunni minni, sambandið er frábært og við pössum svo vel saman. Eina vandamálið er að hún er kannski syst...
Getur tekið heilu kynslóðirnar að ná jafnvægi eftir sameiningu
📅 07.10.2026 👁️ 1
Getur tekið heilu kynslóðirnar að ná jafnvægi eftir sameiningu
Það getur tekið heilu kynslóðirnar að sníða vankantana af sameiningu sveitarfélaga og ágreiningsefnin geta verið afar fjölbreytt, segir Eva Marín Hlyn...
Sex at­vinnu­lausir um hvert laust starf - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Sex at­vinnu­lausir um hvert laust starf - Vísir
Þróunin á vinnumarkaði var meðal þess sem Seðlabankinn fjallaði um á kynningarfundi í morgun eftir að peningastefnunefnd ákvað að halda meginvöxtum ób...
500 krónur mun kosta að aka yfir nýja Ölfusárbrú
📅 07.10.2026 👁️ 1
500 krónur mun kosta að aka yfir nýja Ölfusárbrú
Um 80 manns vinna við smíði Ölfusárbrúarinnar og er verkið töluvert á undan áætlun. Brúin verður um tvö þúsund tonn að þyngd.Það er allt á fullu við b...
Tékkland tekur ekki þátt í Eurovision
📅 07.10.2026 👁️ 1
Tékkland tekur ekki þátt í Eurovision
Tékkneska ríkisútvarpið tilkynnti í dag að Tékkland verði ekki meðal þátttakenda í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, eða Eurovision, á næsta ári...
Hefur áhyggjur af því að félög sem sömdu ekki í gær reyni að heimta meira
📅 07.10.2026 👁️ 1
Hefur áhyggjur af því að félög sem sömdu ekki í gær reyni að heimta meira
Hagkerfið er byrjað að kólna; hagvöxtur minnkar og atvinnuleysi eykst, og von er til þess að verðbólga fari minnkandi á næsta ári þar sem áhrif olíuve...
Hefur áhyggjur af að félög sem sömdu ekki í gær reyni að heimta meira

Police rescue young woman from sea in Playa de las Américas
📅 07.10.2026 👁️ 1
Police rescue young woman from sea in Playa de las Américas
National Police officers have rescued a 24-year-old woman who was struggling to stay afloat in the sea off Playa de las Américas in South TenerifeThe ...
Raflína í Moldóvu nefnd eftir Trump
📅 07.10.2026 👁️ 1
Raflína í Moldóvu nefnd eftir Trump
Ný raflína sem tengja á Moldóvu við Rúmeníu verður nefnd eftir Donald Trump Bandaríkjaforseta og mun bera nafnið „Trump Liberty Line“.Bandaríkin leggj...
Bein út­sending: Á­skoranir á norður­slóðum - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Bein út­sending: Á­skoranir á norður­slóðum - Vísir
„Norðurslóðir standa nú frammi fyrir töluverðum áskorunum. Loftslagsbreytingar eru að endurmóta vistkerfi með áður óþekktum hraða, á sama tíma og auki...
Samfylking og Framsókn ræða meirihlutamyndun í Suðurnesjabæ
📅 07.10.2026 👁️ 1
Samfylking og Framsókn ræða meirihlutamyndun í Suðurnesjabæ
Samfylkingin og Framsóknarflokkurinn í Suðurnesjabær eiga í óformlegum samtölum um myndun nýs meirihluta. Meirihluti Samfylkingar og D-listans sprakk ...
Banda­rískir her­menn í út­göngu­banni eftir morð - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Banda­rískir her­menn í út­göngu­banni eftir morð - Vísir
Devin Jacob Ballard, tuttugu ára liðþjálfi í bandaríska hernum, er grunaður um að hafa orðið Önna Yagi, 39 ára japanskri konu, að bana á hóteli í borg...
Plans to limit peak-season flight prices in the Canary Islands
📅 07.10.2026 👁️ 1
Plans to limit peak-season flight prices in the Canary Islands
Temporary price caps on flights between the Canary Islands and mainland Spain are being considered to help residents facing soaring fares during Chris...
Glap­ræði að hafna væntan­legri launa­hækkun - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Glap­ræði að hafna væntan­legri launa­hækkun - Vísir
Í gær undirritaði Breiðfylkingin, sem samanstendur af Starfsgreinasambandinu, Eflingu, Samiðn og Byggiðn, undir framlengingu kjarasamninga. Aðspurð hv...
Brynhildur fagnaði 26 árum í Sykursalnum
📅 07.10.2026 👁️ 2
Brynhildur fagnaði 26 árum í Sykursalnum
Áhrifavaldurinn Brynhildur Gunnlaugsdóttir fagnaði 26 ára afmæli sínu í Sykursalnum í Grósku.Hún hélt heljarinnar búningapartí og var klædd sem poppdí...
Vin­sældirnar skipti miklu máli fyrir arf­leifð Johns Snorra - Vísir
📅 07.10.2026 👁️ 1
Vin­sældirnar skipti miklu máli fyrir arf­leifð Johns Snorra - Vísir
Heimildarmynd um hinstu för íslenska fjallgöngugarpsins Johns Snorra upp á tind fjallsins K2 að vetri til árið 2021 kom út á dögunum á streymisveitu A...
Segja bók um Guðmund Elíasson vera furðuverk uppfullt af rangfærslum – Systkinum hans fækkað úr fimm í þrjú
📅 07.10.2026 👁️ 2
Segja bók um Guðmund Elíasson vera furðuverk uppfullt af rangfærslum – Systkinum hans fækkað úr fimm í þrjú
Þau Örn Ólafsson, Ingibjörg Ólafsdóttir og Pjetur Hafstein Lárusson gera alvarlegar athugasemdir við nýja bók um Guðmund Elíasson myndhöggvara. Bókin ...
Christa Pike framdi annan hrottalegan glæp í fangelsinu
📅 07.10.2026 👁️ 2
Christa Pike framdi annan hrottalegan glæp í fangelsinu
Christa Pike, hinn dauðadæmdi fangi í Tennessee sem lifði af aftökutilraun í lok síðasta mánaðar, er vöknuð úr dái. Ekki eru allir á einu máli um hvað...