Kæra á hendur Finni Harðarsyni, leigutaka Stóru-Laxár í Hreppum, hefur verið lögð fram hjá embætti sýslumannsins á Suðurlandi, en þar er m.a. krafist opinberrar rannsóknar á atferli hans á veiðisvæðinu við Iðu í Bláskógabyggð.
Kæran tekur einnig til starfsmanns Finns sem hann hefur haft sér til fulltingis við að áreita veiðimenn sem þar stunda veiðar í skjóli eigenda Iðujarðanna beggja.
Segir í kærunni að hann hafi orðið æ grófari í athöfnum sínum við að hrella veiðimenn við Iðu og reyna að eyðileggja fyrir þeim veiðina.
„Sem dæmi um það má nefna að þann 24. ágúst 2025 kom hann akandi yfir gróðurlendi á 30 tonna gröfu og staðnæmdist með gröfuna á Eyrinni í Iðu,“ segir í kærunni. Er því bætt við að hann hafi sveiflað bómu gröfunnar fram og til baka til að hræða veiðimennina.
Fáðu aðgang að þessari grein
Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er.
Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli.
Tryggðu þér aðgang núna.
Innskráning
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.