Finnbjörn A. Hermannsson sagði í síðustu setningarræðu sinni sem forseti Alþýðusambands Íslands að draga verði lærdóma af því hvers vegna forsendur kjarasamninganna 2024 brustu. Hann lætur af embætti á þingi ASÍ sem hófst í dag.
„ASÍ og félögin héldu uppi býsna miskunarlausri gagnrýni gagnvart stjórnvöld um fyrirtækjum fyrir það sem við sögðum hrein „svik” við þær skuldbindingar sem þessir aðilar gengust undir við gerð samninganna 2024 og ákveðnar voru í þeim tilgangi að vinna bug á verðbólgu og þannig skapa forsendur fyrir lækkun vaxta.“
Finnbjörn sagði að launafólk hefði tekið á sig ábyrgð með gerð kjarasamninganna til að ná niður verðbólgu og vöxtum. „Sú gagnrýni stendur; ríkið, sveitarfélögin og stórfyrirtækin hundsuðu þær tryggingar sem gefnar höfðu verið og þessir aðilar öxluðu ekki ábyrgð á meðan launafólk og verkalýðshreyfingin stóð við sitt.“
Hann sagðist ekki telja að sama leið yrði farin aftur í kjarasamningum til lengri tíma nema fyrir lægju skýrar og ótvíræðar tryggingar þess að ríki, sveitarfélög og fyrirtæki stæðu við gefin loforð.
Horfir til næstu samninga
Í síðustu viku réðist það að samningar halda þrátt fyrir að verðbólguforsendur hafi ekki haldið. Finnbjörn beindi augum sínum að næstu kjarasamningum.
„Við þurfum að byrja næstu samningalotu helst ekki síðar en strax,“ sagði Finnbjörn og kvað ástæðu til að ráða það sem hefði miður farið og það sem hefði tekist betur upp með.
Stöðva gervigreindina ekki
Finnbjörn ræddi áhrif gervigreindar á vinnustaði og hvernig best væri að búa í haginn fyrir stækkandi hlut hennar í atvinnulífinu. Hann sagði að ræða þyrfti hvernig gervigreind yrði innleidd og hvaða áhrif hún hefði á kaup og kjör launafólks.
„Við höfum áður séð vélar taka störf af fólki,“ sagði Finnbjörn í þingsetningarræðu sinni á þingi ASÍ. Hann sagði að tölvutækni hefði haft margvísleg áhrif á vinnumhverfið og störf fólks. Hann sagði að gervigreindin væri augljósasta breytingin sem hefði áhrif á atvinnulíf á næstunni en ekki sú eina.
„Þessi þróun, við stöðvum hana ekki. Það er heldur engin ástæða til þess.“
Finnbjörn sagði tækniframfarir geta létt fólki störfin og gert vinnuna betri. Hann sagði að vinnandi fólk ætti þó rétt á að fá að vita hvernig störf þess væru metin. Hann vísaði til réttindabaráttu sendla Wolt þegar hann sagði að sendlar ættu að fá að vita hvað lægi að baki verðmati starfa þeirra.
Hann sagði að launafólk ætti að fá að njóta þess til jafns við atvinnurekendur þegar ný tækni yki framleiðni. Þessa ætti starfsfólk að njóta í kjörum og vinnuaðstæðum.
„Sagan kennir okkur að aukin framleiðni skilar sér ekki sjálfkrafa með sanngjörnum hætti.“
Finnbjörn spurði hver réði ferðinni þegar tæknin kæmi inn á vinnustaði og sagði mikilvægt að launafólk fengi raunverulegt sæti við borðið þegar kæmi að ákvörðunum. Finnbjörn sagði verkalýðshreyfinguna tilbúna í viðræður við atvinnurekendur um hvernig tækni og nýjungar verða innleiddar.
Grafið undan trausti í garð stjórnvalda
Finnbjörn gagnrýndi stjórnvöld nokkuð og sagði að sér blöskraði hversu oft aðhald beindist fyrst að þeim sem minnst hefðu milli handanna. Hann sagði að fyrirheit ríkisstjórnarinnar um að hækka ekki skatta á venjulegt fólk hefðu augljóslega ekki verið efnd.
Finnbjörn lýsti vaxandi áhyggjum af vinnubrögðum stjórnvalda gagnvart verkalýðshreyfingunni. Hann sagði það of oft gerast að komið væri með mál til hreyfingarinnar þegar málin væru langt komin. Hann sagði að hægt væri að kalla þetta samráð en gaf lítið fyrir það.
„Þetta vinnulag gengur ekki til lengdar og það grefur undan trausti.“
Fréttin var uppfærð með ítarlegri kafla um kjarasamninga og fyrirsögninni breytt.