Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir fátt nýtt að frétta í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA). Nú sé leitað leiða til að koma viðræðum í farveg. „En það er ekkert sem er hægt að segja frá opinberlega um það,“ segir hann.
Icelandair og FÍA funduðu síðast á föstudag en ekki liggur fyrir hvenær næsti fundur verður. Ríkissáttasemjari segir þó sennilegt að ekki líði á löngu þangað til fundað verður aftur.
40 flugferðum aflýst
Deilunni var vísað til ríkissáttasemjara 5. maí. Síðan þá hefur tuttugu flugferðum Icelandair frá Keflavíkurflugvelli verið aflýst vegna þess að ekki tókst að manna áhöfn.
Þetta er í öllum tilvikum farþegaflug þar sem flogið er til og frá Íslandi og ferðirnar eru því helmingi fleiri, eða fjörutíu samtals.
Í gær þurfti að aflýsa flugferðum til og frá London, Glasgow og Róm vegna manneklu. Þá var flugi til Zürich aflýst í morgun af sömu ástæðu.
Áætluð flugferð Icelandair til Ilulissat á Grænlandi fyrir hádegi var einnig felld niður. Ásdís Ýr Pétursdóttir, upplýsingafulltrúi Icelandair, segir það hins vegar hafa verið vegna veðurs.