Flugfélagið Icelandair hefur aflýst 38 flugferðum til og frá Keflavíkurflugvelli síðustu vikur vegna þess að ekki tókst að manna áhafnir. Af þeim voru sex ferðir felldar niður í dag, til og frá London, Glasgow og Róm.
Margir voru strandaglópar í dag en ljóst er að mannekla í áhöfnum Icelandair hefur haft áhrif á ferðalög þúsunda farþega. Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, sagði sjaldgæft að aflýsa þyrfti ferðum af þessum sökum þegar fyrstu ferðirnar voru felldar niður 5. maí.
Sama dag var fyrsti fundur Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) hjá ríkissáttasemjara. Þó er ekki er hægt að segja með vissu hvort kjaradeilan sé bein orsök þess að ekki hafi tekist að manna áhafnir.
Samkvæmt skriflegu svari Icelandair við fyrirspurn fréttastofu hefur 19 brottförum frá Keflavíkurflugvelli verið aflýst vegna áhafnaskorts frá 5. maí. Þetta sé allt farþegaflug þar sem flogið er á áfangastað og aftur heim til Íslands og því eru ferðirnar alls 38.
Ásakanir ganga á víxl
Bogi sagði þennan sama dag að hann tryði ekki að áhafnaskortur væri til kominn vegna skipulagðra aðgerða flugmanna en nokkru síðar sagði hann margt benda til óformlegra verkfallsaðgerða flugmanna. Jón Þór Þorvaldsson, formaður FÍA, sagði félagsmenn ekki standa í neinum slíkum aðgerðum og ekki hefur verið boðað til verkfalls.
Hann segir Icelandair bera ábyrgð á manneklu því flugáætlun geri ráð fyrir því að hægt sé að kaupa frídaga af flugmönnum.
Óvenjulegt telst að aflýsa þurfi jafn mörgum flugferðum á svona skömmu tímabili og segir Bogi að það hafi ekki gerst síðan 2014. Þá voru líka kjaraviðræður milli Icelandair og FÍA.
Langt í land í kjaradeilu
Flugmenn hafa verið samningslausir síðan í haust. Deilan snýst í grunninn um vinnuframlag flugmanna og kröfu Icelandair um aukinn sveigjanleika sem felur meðal annars í sér heimildir til að leigja flugvélar mannaðar áhöfnum annarra flugfélaga.
Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari segir að langt sé í land í viðræðum og hefur beðið samningamenn um að tjá sig ekki við fjölmiðla.