„Við hefðum aldrei klárað samningana nema það væru góðir samningar fyrir Sýn og hluthafa félagsins. Við vorum ekki að komast að samkomulagi þannig að það yrði niðurstaðan, þannig að þetta er þá staðan sem komin er upp,“ segir Herdís Dröfn Fjeldsted forstjóri Sýnar.
Viðræður slitnuðu milli Sýnar og Ása, móðurfélags Símans, í gærkvöld. Félögin hafa átt í viðræðum um möguleg kaup Ása á fjölmiðlum Sýnar, á borð við Vísi og Bylgjuna, síðan í mars.
Ásar sögðu í tilkynningu til fjölmiðla í dag að efni viðræðna væri háð trúnaði og yrðu ekki reifuð nánar. Herdís segir að í kaupsamningnum hafi verið ýmis ákvæði sem félögin gátu ekki komist að samkomulagi um.
Hlutabréfaverð í Sýn hafði lækkað í morgun en verðmæti hlutabréfa í Símanum jókst.
Niðurstöður kalla ekki á uppsagnir
Rekstur Sýnar hefur verið þungur undanfarið og fyrirtækið tapaði 630 milljónum í fyrra. Herdís segir þá stöðu ekki hafa leitt til þess að viðræður slitnuðu. Hún sér ekki fram á að niðurstöður viðræðna leiði til samdráttar eða uppsagna.
„Allar forsendur sem lagðar voru til grundvallar – við getum staðfest að Sýn uppfyllti allar þessar forsendur, þar á meðal tekju- og afkomuforsendur félagsins,“ segir Herdís.
„Niðurstöður viðræðna kalla ekki einar og sér á uppsagnir. En eins og áður þá eru skipulag og kostnaðargrunnur metin reglulega.“