Pallbíll með hjólhýsi fauk á Holtavörðuheiði með þeim afleiðingum að hjólhýsið lá á hlið þvert yfir veginn og bíllinn sat fastur í vegkantinum dágóða stund.
Vindur upp á 27 metra á sekúndu mældist og vindhviður fóru upp í allt að 33 metra á sekúndu þegar Heiðrún Hauksdóttir ökuleiðsögumaður keyrði yfir heiðina í átt að Akureyri.
Holtavörðuheiðinni var lokað um svipað leyti og atvikið átti sér stað á fimmta tímanum í dag. Hjólhýsi fauk einnig út af Suðurlandsveginum við Sandskeið í dag.
Heiðrún var á ferð yfir heiðina og tók myndir á vettvangi. Hún segir í samtali við mbl.is að atvikið hafi orðið á efsta punkti Holtavörðuheiðarinnar. Um 45 mínútur liðu frá því að hún kom á staðinn og þar til dráttarbíl bar að að hennar sögn.
Hún segist vilja vekja athygli á atvikinu til að vara fólk við því að lenda í aðstæðum sem þessum. Það snúist ekki um að skamma fólk heldur að koma í veg fyrir frekari skaða.

